Á döfinni

Kynningarfundur um styrki Tækniþróunarsjóðs - fyrirtækjastyrkir og skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna

  • 16.2.2023, 12:00, Veffundur

Sérfræðingur frá Rannís mun kynna opinberan stuðning til nýsköpunarverkefna á vegum Tækniþróunarsjóðs og skattfrádráttar rannsókna- og þróunarverkefna .

Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum fyrirtækjastyrkja Tækniþróunarsjóðs, þ.a.m.:

  • einstaklingar
  • lítil og meðalstór fyrirtæki
  • háskólar
  • opinberar rannsóknastofnanir
  • opinber fyrirtæki

Fundinum verður streymt og verður hlekkur á streymi sendur þau sem skrá sig.

Skráning á fund 

ATH: Getum ekki ábyrgst að hlekkur verði sendur tímanlega ef skráning er gerð með litlum fyrirvara.


Tækniþróunarsjóður verður með viðveru í Grósku alla föstudaga (frá og með 10. febrúar) fram að umsóknarfresti og í mars bætast við miðvikudagar eftir hádegi (15. mars er seinasti dagurinn).








Þetta vefsvæði byggir á Eplica