Íslenskukennsla fyrir útlendinga
islenskukennsla.utlendinga(hja)rannis.is
Hvert er markmiðið?
Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru hér á landi og skráðir eru með lögheimili í Þjóðskrá, tækifæri á að öðlast nauðsynlega færni í íslensku til að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar á Íslandi.
Hverjir geta sótt um?
Í 3. gr. Reglum um úthlutun styrkja til íslenskukennslu fyrir útlendinga segir:
Rétt til að sækja um styrk eiga fræðsluaðilar sem öðlast hafa viðurkenningu mennta- og barnamálaráðuneytisins á grundvelli 7. gr. laga um framhaldsfræðslu og fyrirtæki eða stofnanir sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá. Fyrirtæki eða stofnanir, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að hafa samning við viðurkenndan framhaldsfræðsluaðila er annast kennsluna. Í samningi skal koma fram hverjir samningsaðilar eru, lýsing á inntaki þjónustunnar sem veitt er og fjárhæð sem greidd er fyrir hana. Afrit af samningi skal fylgja með umsókn fyrirtækis.
Hvað er styrkt?
Styrkurinn gildir aðeins fyrir nám í íslensku sem ekki er hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.
Skilyrði úthlutunar
Umsækjandi skal senda inn umsókn í rafrænu umsóknakerfi Rannís. Í umsókn skal tilgreina:
- Lýsingu á námskeiði
- Tegund námskeiðs
- Fjölda námskeiða
- Fjölda námskeiðsstunda. Samkvæmt námskrám ( grunnnám og framhald ) er hver áfangi/námskeið 60 kennslustundir. Ein kennslustund er lágmark 40 mínútur.
- Áætlaðan heildarfjölda þátttakenda (10 að lágmarki og 20 að hámarki)
- Tengingu við Evrópska tungumálarammann,
- Námskeiðskostnað (sjá leiðbeiningar og hjálparskjal )
- Fjármögnun
Fyrir lokauppgjör skal umsækjandi skila upplýsingum um framkvæmd námskeiðs til Rannís samkvæmt þeim reglum sem gerðar eru um gagnaskil.
Hlutverk Rannís
Mennta- og barnamálaráðuneyti úthlutar styrkjunum. Rannís annast umsýslu og afgreiðslu styrkumsókna fyrir hönd ráðuneytisins.
Nytsöm skjöl og tenglar
Nánari upplýsingar
- Skúli Leifsson, s. 5155843
- Tekið er á móti fyrirspurnum á islenskukennsla.utlendinga (hja) rannis.is
