Tækniþróunarsjóður
Hvert er markmiðið?
Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Hann starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun, nr. 75/2007.
Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi.
Hverjir geta sótt um?
Einstaklingar, fyrirtæki, háskólar og stofnanir geta sótt um í Tækniþróunarsjóð. Takmarkanir geta þó verið í ákveðnum styrkjaflokkum.
Hvað er styrkt?
Sjóðnum er heimilt að fjármagna nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs. Mikilvægt er að auka fjölbreytni atvinnulífsins og hraða uppbyggingu þekkingar- og hátæknistarfsemi. Stjórn Tækniþróunarsjóðs telur sjóðinn mæta þessum sjónarmiðum með því að skilgreina nýjar áherslur í samræmi við hlutverk sjóðsins. Hægt er að sækja um eftirfarandi styrki:
Einkaleyfisstyrkir: Tilgangur einkaleyfisstyrkja er annars vegar að undirbúa og skila inn forgangsréttarumsókn og hins vegar að undirbúa og skila inn umsókn í alþjóðlegt ferli. Hámarksstyrkur vegna forgangsréttarumsóknar er 300 þ.kr. og hámarksstyrkur vegna umsóknar í alþjóðlegu ferli er 1,2 m.kr.
Frumherjastyrkir: Frumherjastyrkir eru sniðnir að þörfum sprotafyrirtækja og frumkvöðla með verkefni á byrjunarstigi. Frumherjinn er sjálfur í fyrirrúmi og hyggst eða hefur stofnað fyrirtæki um hugmynd sína. Gert er ráð fyrir að aðkeypt þjónusta rannsóknastofnana og háskóla sé að öllu jöfnu innan við 20% af styrkupphæð. Nýnæmi er mikið og rannsóknaþáttur verkefnisins er verulegur.
Hámarksstyrkur getur numið allt að 14 milljónum króna samanlagt á tveimur árum, þó ekki meira en 7 milljónir króna á fyrsta ári. Gerð er krafa um að lágmarki 25% mótframlag umsækjenda af heildarkostnaði við verkefnið.
Verkefnisstyrkir: Verkefnisstyrkir eru ætlaðir til að styrkja verkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar. Verkefni getur fengið styrk til allt að 3ja ára og að hámarki 15 milljónir króna á ári. Krafist er að lágmarki 50% mótframlags umsækjenda af heildarkostnaði verkefnisins.
Markaðsstyrkir: Markaðsstyrkir eru eingöngu fyrir fyrirtæki sem eru að komast á legg og eru með veltu undir 300 milljónum króna skv. síðasta ársreikningi. Umsóknin skal að öllu jöfnu tengjast undangenginni vöruþróun í tengslum við rannsóknar- og þróunarstarf fyrirtækisins fyrir sömu afurðir. Hægt er að sækja um styrk vegna sérstaks markaðsátaks en einnig uppbyggingu innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.
Dótturfyrirtæki erlendra fyrirtækja geta ekki sótt um markaðsstyrki.
Verkefnin eru styrkt til eins árs, að hámarki 10 milljónir króna. Gerð er krafa um að lágmarki 50% mótframlag umsækjenda af heildarkostnaði við verkefnið.
Áherslusvið haustið
2015 – Efnistækni
Stjórn Tækniþróunarsjóðs óskar sérstaklega eftir umsóknum á sviði efnistækni fyrir umsóknarfrest 15. september 2015. Athugið að ef umsókn tilheyrir þessu áherslusviði, þarf að velja það sérstaklega í umsókn.
Nánar upplýsingar um efnistækni sem áherslusvið hér.
Skilyrði úthlutunar
Tækniþróunarsjóður er samkeppnissjóður. Umsóknir eru metnar af fagráði sem leggur til ráðgefandi álit um styrkveitingu til stjórnar sjóðsins. Stjórn Tækniþróunarsjóðs tekur endanlega ákvörðun um úthlutun.