Atvinnusviðslistahópa.
Veittir eru styrkir til einstakra verkefna.
Að jafnaði liggur úthlutun fyrir í janúar ár hvert.
Er einu sinni á ári, næst: 4. október 2021.
Að jafnaði er opnað fyrir umsóknir sex vikum fyrir umsóknarfrest.
Umsóknum skal skilað rafrænt; einungis er tekið við rafrænum fylgigögnum með umsókn. Senda fyrirspurn
Sviðslistasjóður starfar samkvæmt nýjum lögum um sviðslistir 2019 nr. 165 sem tóku gildi í júlí 2020.
Alþingi veitir árlega fé í fjárlögum til stuðnings sviðslistasjóði með það að markmiði að efla sviðslistir og búa þeim hagstæð skilyrði.
Veittir eru styrkir til einstakra verkefna atvinnusviðslistahópa.
Umsókn í sviðslistasjóð getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna ef tilgreint í umsóknarformi.
Sviðslistaráð úthlutar styrkjum til stuðnings atvinnusviðslistahópum, sbr. lög um sviðslistir 2019 nr. 165 .
Hafi umsækjandi áður fengið styrk af fjárveitingu til starfsemi atvinnuleikhópa skal það vera ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir afgreiðslu nýrrar styrkumsóknar að fyrir liggi greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins. Sviðslistaráð getur kallað eftir frekari upplýsingum vegna umsóknar ef nauðsyn krefur.
Hlutverk Rannsóknarmiðstöðvar Íslands, Rannís, er að sjá um umsýslu sviðlistasjóðs fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Ragnhildur Zoëga, s. 515 5838
Óskar Eggert Óskarsson, s. 515 5839
Tekið er á móti fyrirspurnum á svidslistasjodur(hja)rannis.is