Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúdóma hjá öldruðum hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2012

Verkefnið sem hlaut verðlaunin að þessu sinni heitir Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum og var það unnið af Vilhjálmi Steingrímssyni, nemanda í læknisfræði við Háskóla Íslands. Leiðbeinendur hans í verkefninu voru Thor Aspelund og Vilmundur Guðnason hjá Hjartavernd.

Verkefnið gekk út á að útbúa tól sem aðstoðar við mat á áhættu á hjartaáföllum til skamms tíma hjá öldruðum og gefur þannig tækifæri til markvissra forvarna fyrir þann aldurshóp. Slík tól eru ekki aðgengileg í Evrópu í dag. Kransæðasjúkdómar eru ein helsta orsök alvarlegs heilsubrests hjá öldruðum og kostnaður við lyf og þjónustu sem fylgir hjartaáföllum er mikill. Með því að seinka eða koma í veg fyrir alvarlegar afleiðingar kransæðasjúkdóms má bæta lífsgæði aldraðra og einnig létta af heilbrigðiskerfinu. Í verkefninu er leitast við að finna þætti með forspárgildi sem einstaklingar geta sjálfir haft árhrif á, eins og reykingar, hreyfingu, blóðfitu og blóðþrýsting (með bættu mataræði), sem og að búa til tæki fyrir heilbrigðisstarfsfólk til að styðjast við í fyrirbyggjandi starfi hvað varðar hjarta- og kransæðasjúkdóma meðal aldraðra.

Sex önnur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:
Bætt nýtni í íslenskri grænmetisrækt, unnið af Darra Eyþórssyni HÍ og Einari Margeiri Kristinssyni; Eyðibýli á Íslandi: Rannsókn á eyðibýlum og yfirgefnum húsum í Austur-Skaftafellssýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu sumarið 2011, unnið af Arnþóri Tryggvasyni LHÍ, Árna Gíslasyni HÍ, Birki Ingibjartssyni LHÍ, Steinunni Eik Egilsdóttur LHÍ og Yngva Karli Sigurjónssyni LHÍ; Greining prentgripa fyrir safneignir, bókakápur og veggspjöld, unnið af Örnu Rún Gústafsdóttur og Jarðsegulsviðshermir: hönnun, smíði og prófanir, unnið af Andrési Gunnarssyni HÍ, og Þróun aðferða við mat og viðgerðir á landi eftir akstur utan vega, unnið af Önnu Sigríði Valdimarsdóttur og Helga Guðjónssyni HÍ.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica