Sölvi Rögnvaldsson hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2017

  • Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Sölva Rögnvaldssyni Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2017.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 31. janúar 2017. Sölvi Rögnvaldsson, BS-nemi í hagnýttri stærðfræði við Háskóla Íslands, hlaut verðlaunin fyrir verkefnið Áhættureiknir við meðhöndlun sjúklinga með mergæxli. Leiðbeinendur hans voru Sigrún Helga Lund, dósent í líftölfræði við Háskóla Íslands, og Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor í blóðsjúkdómum við Læknadeild Háskóla Íslands.

Áhættureiknir við meðhöndlun sjúklinga með mergæxli er tölfræðilíkan sem aðstoðar lækna við að ákvarða meðferð sjúklinga með mergæxli, sem er alvarlegt krabbamein í beinmerg. Líkanið notar upplýsingar um aldur, kyn og fyrirliggjandi sjúkdóma til að meta horfur sjúklingsins og hefur betra forspárgildi en sá áhættureiknir sem nú er notaður í blóðlækningum.

Við þróun áhættureiknisins var notað umfangsmikið gagnasafn sem er einstakt á heimsvísu. Gögnin innihalda upplýsingar um sjúkdómsgreiningar og lifun ríflega 13.000 sænskra mergæxlissjúklinga á árunum 1985-2013.

Til að gera áhættureikninn aðgengilegan blóðmeinasérfræðingum var útbúin vefsíða og iPhone smáforrit og stefnan er að koma áhættureikninum í notkun um allan heim. Aðferðafræðina sem þróuð var í verkefninu mætti ennfremur nota til að smíða áhættureikna fyrir aðra sjúkdóma.

Fjögur önnur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:

Framköllun fælniviðbragðs með sýndarveruleika. Verkefnið var unnið á Gervigreindarsetri Háskólans í Reykjavík af þeim Herði Má Hafsteinssyni, Ara Þórðarsyni og Gunnari Húna Björnssyni, í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu og Nox Medical. Leiðbeinendur voru Hannes Högni Vilhjálmsson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík og Bjarni V. Halldórsson dósent við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og Íslenska erfðagreiningu.

Hulda: Hljóð- og ljósskúlptúr. Verkefnið var unnið af Lilju Maríu Ásmundsdóttur, nema frá Listaháskóla Íslands, undir handleiðslu Berglindar Maríu Tómasdóttur, dósents í flutningi og miðlun samtímatónlistar við Listaháskóla Íslands, og Jóns Marinós Jónssonar fiðlusmiðs.

Kortlagning taugabrauta sameinuð þrívíddarmódelum til stuðnings við undirbúning heilaskurðaðgerða. Verkefnið var unnið af Írisi Dröfn Árnadóttur, meistaranema við Háskólann í Reykjavík. Leiðbeinendur voru Paolo Gargiulo, dósent við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og Landspítala-háskólasjúkrahús, og Ingvar Hákon Ólafsson, heila- og taugalæknir við Landspítala-háskólasjúkrahús.

Ræktun smáþörunga, nýr íslenskur hátækniiðnaður. Verkefnið var unnið af Bergþóri Traustasyni, nemanda í verkfræðilegri eðlisfræði, og Tryggva E. Mathiesen og Unni Elísabetu Stefánsdóttur, sem bæði stunda nám í matvælafræði við Háskóla Íslands. Leiðbeinendur verkefnisins komu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, þeir Gissur Örlygsson, verkefnastjóri - örtækni og heilsutækni, og Kristján Leósson framkvæmdastjóri, og frá Keynatura þau Halla Jónsdóttir, yfirmaður rannsókna og þróunar, Sigurbjörn Einarsson líffræðingur og Sjöfn Sigurgísladóttir framkvæmdastjóri.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica