Mats- og úthlutunarferlið
Sérstakt fagráð metur allar umsóknir og gerir tillögu að úthlutun til stjórnar Innviðasjóðs sem tekur endanlega ákvörðun byggða á fjármagni í sjóðnum.
Vinsamlegast athugið að umsækjendur eiga ekki undir nokkrum kringumstæðum að hafa samband við stjórnarmenn eða fagráðsmenn meðan mat umsókna fer fram. Öllum fyrirspurnum og ábendingum skal beina til Rannís. Brot á þessu ákvæði getur leitt til þess að umsókn verði vísað frá.
Við úthlutun úr Innviðasjóði er öðru fremur tekið mið af eftirfarandi atriðum:
- Að innviðirnir séu mikilvægir fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
- Að fjárfesting í innviðum skapi nýja möguleika til rannsókna og/eða innviðirnir tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður og eða markáætlun styrkir.
- Að samstarf verði um nýtingu innviða milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
- Að áætlanir um kostnað og fjármögnun séu raunhæfar.
- Að innviðirnir auki möguleika á menntun og þjálfun á viðkomandi fræðasviði.
Innviðir sem komið er upp með styrk frá sjóðnum skulu vera aðgengilegir
öðrum rannsóknahópum eftir því sem svigrúm er til og skal sjóðnum gerð
grein fyrir hvernig aðgengi verður háttað.
Við mat fagráðs er umsóknum raðað í þrjá flokka:
- Í I. flokk fara umsóknir sem
fagráð telur að beri af og eigi að njóta forgangs í styrkveitingum úr sjóðnum.
- Í II. flokk fara umsóknir sem eru
styrkhæfar og ber að styrkja ef nægt fé er í sjóðnum.
- Í III. flokk fara umsóknir sem fagráðið
telur að ekki beri að styrkja.