Öryggi og persónuvernd á vefnum

Þegar þú notar vef Rannís verða til upplýsingar um heimsóknina. Rannís miðlar þeim ekki til annarra en eftirlitsaðila, samkvæmt lagaskyldu. 

Notkun á vafrakökum

Svokallaðar vafrakökur* eru notaðar til að telja heimsóknir á vefinn.

Það er stefna Rannís að nota vafrakökur sparlega og með ábyrgum hætti. Notendur vefjarins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum, eða hafni þeim með öllu. 

Rannís notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem dagsetning og tími, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað og ekki er gerð tilraun til að tengja upplýsingarnar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

* „Cookies“ eru sérstakar skrár sem komið er fyrir á tölvu notanda sem heimsækir viðkomandi vef og geymir upplýsingar um heimsóknina. 

Öryggi á vefnum

Öll samskipti við vefþjóna okkar eru  dulkóðuð yfir öruggar vefslóðir (HTTPS). Það gerir gagnaflutning öruggari og varnar því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. 

Námskeiðsskráningar og innsend gögn

Við skráningu á námskeið eða viðburði hjá Rannís er beðið um upplýsingar sem nauðsynlegar eru til þess að við getum haft samband við þátttakendur og sent reikninga fyrir námskeiðsgjöldum. 

Upplýsingar um þátttakendur og greiðendur fara til frekari úrvinnslu hjá starfsmönnum okkar, sem vinna eftir verklagsreglum Rannís varðandi meðhöndlun á persónuupplýsingum. 

Almennt gildir um persónurekjanlegar upplýsingar sem Rannís berast (t.d. í tölvupósti eða við skráningar á námskeið og viðburði) að áhersla er lögð á að einungis þeir starfsmenn sem tengjast viðkomandi ferli hafi aðgang að upplýsingunum. Ekki er um að ræða neina samkeyrslu innsendra upplýsinga og þeim er aldrei deilt með þriðja aðila.

Skráning á póstlista Rannís

Hægt er að skrá sig á póstlista Rannís á vefnum okkar. Með því að skrá þig á póstlista Rannís færð þú hnitmiðaðar tilkynningar um opnanir fyrir umsóknir í sjóði, viðburði og námskeið. Tilkynningarnar eru hannað og sendar út með póstkerfinu MailChimp. Hægt er að breyta eða segja upp áskriftinni hvenær sem er með því að smella á tengil til að breyta upplýsingum um skráningu, neðst í tölvupóstinum.

Hafa samband – ábending eða fyrirspurn

Á mörgum síðum vefsins er hægt að hafa samband við tengiliði sjóða og verkefna með því að senda þeim tölvupóst. Starfsmaður sem tekur á móti fyrirspurninni, skráir hana í skjalakerfi Rannís og afgreiðir. Afrit af erindunum og svörum Rannís eru ekki vistuð í vefumsjónarkerfinu.

Varnir gegn ruslpósti (e. spam)

Á vefformum þar sem notandi getur sent inn upplýsingar höfum við virkjað sjálfvirka vörn gegn ruslpósti, svokallaða ReCAPTCHA virkni frá Google. Notendur gætu orðið varir við hana á þann hátt að þeir verði beðnir að leysa verkefni sem erfitt er fyrir forritaða sjálfvirkni að leysa.

ReCAPTCHA aflar upplýsinga um vafra og vafranotkun og greinir þær til að meta hvort um er að ræða raunverulega notendur eða forritaða sjálfvirkni. Þessi virkni fellur strangt til tekið undir skilgreiningar persónuverndarlaga, en þær upplýsingar sem berast Google eru nafnlausar og innihalda ekki nein gögn sem notandi hefur slegið inn í viðkomandi form.

Þessar varnir hafa reynst nauðsynlegar til þess að hægt sé að bjóða upp á innsendingu forma um vefinn. Vilji notendur ekki undirgangast þá virkni sem ReCAPTCHA felur í sér er þeim bent á að senda okkur upplýsingar í tölvupósti í staðinn.

Tenglar í aðra vefi

Á vef Rannís er stundum vísað á vefi annarra stofnana, félagasamtaka og fyrirtækja. Reglur Rannís um öryggi notenda á vef Rannís gilda ekki utan hans. Rannís ber ekki ábyrgð á efnisinnihaldi eða áreiðanleika annarra vefja. Vísunin þýðir heldur ekki að Rannís styðji eða aðhyllist nokkuð sem þar kemur fram.

Tölvupóstur til vefumsjónar

Hægt er að senda ábendingar er varða vefinn til vefumsjónar, vefur[hjá]rannis.is.

Persónuverndarfulltrúi Rannís er Elísabet M. Andrésdóttir








Þetta vefsvæði byggir á Eplica