M | Þ | M | F | F | L | S |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst umsóknarfresti í Erasmus+ og ESC fyrir árið 2025.
Lesa meiraFyrir hverja?
Bókaútgefendur sem skráðir eru virðisaukaskattskyldir aðilar skv. 5. gr. laga um virðisaukaskatt með atvinnugreinarnúmerið 58.11.0 sem bókaútgáfa. Umsækjandi sé fjárhagslega ábyrgur fyrir útgáfu bókar sem sótt er um. Umsækjandi sé í skilum við hið opinbera og skal leggja fram staðfestingu sem fæst á þjónustuvef Rsk .
Til hvers?
Endurgreiðsla hluta kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku sem eru aðgengilegar almenningi með opinberri sölu, láni eða leigu byggir á lögum um stuðning við útgáfu bóka á íslensku nr. 130/2018 .
Hvað er bók?
Með bók er átt við ritverk eða ritröð sem er að minnsta kosti átta blaðsíður að lengd og bundið eða fest á hliðstæðan hátt í kjöl. Undir hugtakið bók falla einnig hljóðupptökur af lestri og önnur rafræn útgáfa slíkra verka. Ritröð er safn ritverka í mörgum bindum með sameiginlegum heildartitli, en hvert bindi sjálfstæð heild. Sjá nánar í greinargerð með frumvarpi (Um 3. grein) hér á síðunni.
Mikilvægt áður en umsókn er send inn
Áður en umsókn er send inn er mikilvægt að umsækjandi kynni sér handbók sjóðsins og aðrar upplýsingar á þessari síðu.
Umsóknarfrestur: 9 mánuðir frá útgáfudegi
Opið fyrir umsóknir allt árið. Umsókn um staðfestingu ásamt fylgigögnum skal berast eigi síðar en níu mánuðum eftir útgáfudag bókarinnar.
UMSÆKJENDUR ATHUGIÐ: TAFIR Á AFGREIÐSLU:
Vegna skipunar nýs nefndarmeðlims verða tafir á afgreiðslu umsókna. Næsta afgreiðsla verður í maí.
Lesa meira