Frádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga
Hvert er markmiðið?
Markmiðið er að laða að erlenda sérfræðinga sem búa yfir nauðsynlegri þekkingu og hæfni til starfa hér á landi og með því að gera fyrirtækjum auðveldara fyrir að fá til sín slíka aðila svo að ekki þurfi að fara með viðkomandi starfsemi úr landi. Hér er ekki hvað síst átt við íslensk tækni- og rannsóknarfyrirtæki og háskólasamfélagið. Þannig laða skattalegir hvatar til landsins sérfræðinga s.s. í rannsóknum og þróun, nýsköpun, framleiðslu, stjórnun, skipulagningu, markaðssetningu, verkfræði, fjármálum, upplýsingatækni, samskiptatækni og kennslu, svo eitthvað sé nefnt.
Hverjir geta sótt um?
Vinnuveitandi og/eða starfsmaður, þ.e. hinn erlendi sérfræðingur.
Umsókn
Sótt er um frádráttarheimildina í umsóknarkerfi Rannís. Nauðsynlegt er að skila eftirfarandi umsóknargögnum með umsóknum:
- Staðfestingu á lögheimilissögu frá Þjóðskrá Íslands - vottorð C-122 ( English version C-122).
- Ráðningarsamningi.
- Ferilskrá.
- Greinargerð vinnuveitanda um að viðkomandi sérþekking eða reynsla sé ekki fyrir hendi hér á landi eða í litlum mæli.
- Annað sem umsækjandi telur skipta máli.
Skilyrði frádráttarheimildar
Starfsmaður telst erlendur sérfræðingur, óháð ríkisborgararétti, séu eftirfarandi skilyrði uppfyllt:
-
hann hefur ekki verið búsettur eða heimilisfastur hér á landi á næsta 60 mánaða samfelldu tímabili fyrir upphaf starfa hans hér á landi, en þó þannig að fyrstu þrír mánuðir dvalar hérlendis teljast ekki með; og.
- hann sé búsettur og með lögheimili hér á landi;
og
- hann búi yfir þekkingu eða reynslu sem ekki sé fyrir hendi hér á landi eða í litlum mæli.
Þá gildir reglan einungis ef hinn erlendi sérfræðingur:
- er ráðinn til starfa hjá lögaðila sem hefur lögheimili eða fasta starfsstöð hér á landi og sá aðili greiði honum laun sem sérfræðingi; og
- er ráðinn til að sinna verkefnum er krefjast sérþekkingar og reynslu sem ekki er fyrir hendi hér á landi eða í litlum mæli; og
- hann starfi á sviði rannsókna, þróunar og/eða nýsköpunar, kennslu eða við úrlausn og/eða uppbyggingu sérhæfðra verkefna; eða
- hann sinni framkvæmda- eða verkefnastjórnun eða öðrum verkefnum sem eru lykilþættir í starfsemi fyrirtækisins.
Afgreiðsla umsóknar
Til þess að umsókn teljist fullgild verður hún að berast nefndinni eigi síðar en þremur mánuðum eftir að erlendur sérfræðingur hóf störf hér á landi ásamt öllum nauðsynlegum og umbeðnum upplýsingum vegna hvers sérfræðings fyrir sig. Berist umsókn síðar er henni hafnað. Nefndin skal að jafnaði taka ákvörðun um umsókn innan þriggja vikna eftir að endanleg gögn liggja fyrir. Ef rökstuðningur og/eða fylgigögn eru ófullnægjandi gefur nefndin umsækjanda kost á að bæta úr annmörkunum innan tveggja vikna að jafnaði. Verði ekki bætt úr annmörkum er umsókn vísað frá. Meirihluti nefndarmanna nægir til þess að umsókn verði samþykkt. Nefndin heldur skrá yfir þær umsóknir sem hún móttekur og einnig yfir samþykktar umsóknir. Nefndarmönnum ber að gæta þagmælsku og fyllsta trúnaðar um gögn og upplýsingar sem berast nefndinni sem helst þótt látið sé af setu í nefndinni.
Nýr vinnuveitandi
Frádráttarheimildin flyst ekki sjálfkrafa á milli vinnuveitanda.
Eftirfarandi tekur
gildi frá og með 30. ágúst 2024:
Hafi starfsmaður hlotið samþykki nefndarinnar og verið viðurkenndur sem sérfræðingur er honum heimilt að skipta um starf innan þess þriggja ára tímabils sem frádráttarheimild hefði að óbreyttu tekið til, sbr. upphafsmálslið 1. mgr. 6. tölul. A-liðar 30. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, enda hafi hann endurnýjað umsókn sína og hafið störf innan þriggja mánaða frá lokum fyrra starfs. Starf telst hafið að nýju þegar skipt er um starf frá einum lögaðila til annars, sem starfar undir sjálfstæðri kennitölu, þrátt fyrir að um sé að ræða t.d. félög í eigu upphaflegs eða fyrri vinnuveitanda, sbr. a-lið 3. mgr. 2. gr. Umsókn sem berst að liðnum þremur mánuðum frá upphafi nýs starfs verður hafnað og jafnframt fellur frádráttur niður við lok fyrra starfstímabils. Endurnýjuð umsókn gildir að óbreyttum starfstíma til upphaflegs þriggja ára tímabils. Ákvæði reglugerðar þessarar taka að öðru leyti til endurnýjunar á umsókn að frátöldum a-lið 2. mgr. 2. gr.
Nytsöm skjöl og tenglar
- 6.tölul. 30. gr. A-liðar 1. mgr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt
- Reglugerð nr. 1202/2016, um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga
- Breyting á reglugerð nr. 1202/2016, um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga
- Tilkynning fjármála- og efnahagsráðuneytisins
- Fréttatilkynning Rannís
- Nánari upplýsingar á vef ríkisskattstjóra
- Stutt kynning á glærum (pdf)