Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla
sprotasjodur(hja)rannis.is
Hvert er markmiðið?
Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá, samkvæmt 15. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla, 34. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla og 53. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla.
Til sjóðsins renna fjármunir sem veittir eru á fjárlögum hverju sinni. Nánar má sjá um hlutverk sjóðsins í reglugerð hans Nr. 242/2009.
Hvað er styrkt og áherslusvið árið 2023?
Þróunarverkefni í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Áherslusvið sjóðsins fyrir árið 2023 eru:
- Farsæld barna og ungmenna með áherslu á geðrækt, geðtengsl, geðheilbrigði.
- Sköpun og hönnun.
- Stafræn borgaravitund, upplýsinga- og miðlalæsi.
Hverjir geta sótt um?
Leikskólastjórar, skólastjórar og skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstaka kennara. Aðrir aðilar geta einnig sótt um en þurfa þá að skila inn staðfestingu á þátttöku skóla með umsókn.
Skilyrði úthlutunar
Sjá matskvarða Sprotasjóðs. Samkvæmt 6. grein reglugerðar um Sprotasjóð leik-,grunn- og framhaldsskóla skal mat á umsóknum einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:
- gildi og mikilvægi verkefnis með tilliti til hlutverks Sprotasjóðs,
- verkefni feli í sér þróunarstarf innan skóla, samstarf milli skóla eða skólastiga,
- verkefnið falli að þeim áherslum eða áherslusviðum er fram koma í auglýsingu,
- líkum á því að umsækjanda/umsækjendum takist að ná þeim markmiðum er verkefnið miðar að,
- starfsferli og faglegum eða fræðilegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda m.t.t. þeirra krafna sem verkefnið gerir til þeirra.
Hlutverk Rannís
Hlutverk Rannsóknarmiðstöðvar Íslands, Rannís, er að sjá um umsýslu Sprotasjóðs fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytis.
Nytsamir tenglar
Nánari upplýsingar
- Eydís Inga Valsdóttir, s. 515 5834
- Skúli Leifsson, s. 515 5843
- Tekið er á móti fyrirspurnum á sprotasjodur(hja)rannis.is