Athugið: Nýjar fréttir og viðburðir birtast nú eingöngu á island.is/s/rannis

Desember 2025

desember 2025

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Arctic Research and Studies - Norðurslóðafræði 15.12.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Fyrir starfsmenn háskóla og stofnana sem tengjast norðurslóðafræðum.

Til hvers?

Til að efla langtíma samstarf íslenskra og norskra stofnana með sóknarstyrkjum vegna undirbúningsvinnu við gerð umsókna í alþjóðlega samkeppnissjóði.

Umsóknarfrestur

Deadline for applications is on 15. December 2025 (15:00 UTC).

EN

Lesa meira
 

Aðventukaffi Erasmus+ í Bókasafni Kópavogs 4.12.2025 15:00 Aðventukaffi Erasmus+

Hvert langar þig að fara? Ertu með hugmynd að verkefni? Í þessu aðventukaffi verða kynnt helstu atriði og tækifæri í Erasmus+ og European Solidarity Corps og síðan gefst tækifæri á að eiga óformlegt spjall yfir léttum kaffiveitingum. Öll velkomin fimmtudaginn 4. desember kl.15:00.

Lesa meira
 

Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku 31.12.2025 Opið fyrir umsóknir allt árið

Fyrir hverja?

Bókaútgefendur sem skráðir eru virðisaukaskattskyldir aðilar skv. 5. gr. laga um virðisaukaskatt með atvinnugreinarnúmerið 58.11.0 sem bókaútgáfa. Umsækjandi sé fjárhagslega ábyrgur fyrir útgáfu bókar sem sótt er um. Umsækjandi sé í skilum við hið opinbera og skal leggja fram staðfestingu sem fæst á þjónustuvef Rsk .

Til hvers?

Endurgreiðsla hluta kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku sem eru aðgengilegar almenningi með opinberri sölu, láni eða leigu byggir á lögum um stuðning við útgáfu bóka á íslensku nr. 130/2018 .

Hvað er bók?

Með bók er átt við ritverk eða ritröð sem er að minnsta kosti átta blaðsíður að lengd og bundið eða fest á hliðstæðan hátt í kjöl. Undir hugtakið bók falla einnig hljóðupptökur af lestri og önnur rafræn útgáfa slíkra verka. Ritröð er safn ritverka í mörgum bindum með sameiginlegum heildartitli, en hvert bindi sjálfstæð heild. Sjá nánar í greinargerð með frumvarpi (Um 3. grein) hér á síðunni.

Mikilvægt áður en umsókn er send inn

Áður en umsókn er send inn er mikilvægt að umsækjandi kynni sér handbók sjóðsins og aðrar upplýsingar á þessari síðu.

Umsóknarfrestur

Umsókn skal berast eigi síðar en 9 mánuðum eftir útgáfudag bókarinnar.

EN

Lesa meira
 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica