Athugið: Nýjar fréttir og viðburðir birtast nú eingöngu á island.is/s/rannis

Febrúar 2026

febrúar 2026

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla 2.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Leikskólastjóra, skólastjóra eða skólameistara fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.

Til hvers?

Styrkja verkefni sem stuðla að þróun og nýjungum í skólastarfi  í leik-, grunn- og framhaldsskólum.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er 2. febrúar 2026 klukkan 15:00.

Auglýst var eftir umsóknum á vef Rannís 26. nóvember 2025
Sjá upplýsingar um hvernig einstaklingar geta skráð sig innn á fyrir hönd opinberra aðila í gegnum umboðskerfi innskráningarþjónustu Ísland.is. Ef spurningar vakna tengt veitingu umboðs þarf að hafa samband við island.is. En notandi sem gerir umsókn fyrir skóla má vera einstaklingur og það er algengast.

EN

Lesa meira
 

Æskulýðssjóður 16.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Börn og ungmenni,  á aldrinum 6-25 ára.

Til hvers?

Auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína. 

Umsóknarfrestur: 

Næsti umsóknarfrestur verður 16. febrúar 2026 klukkan klukkan 15:00.

Senda fyrirspurn

 EN

Lesa meira
 

Þróunarsjóður námsgagna 16.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Kennara, höfunda námsefnis og útgáfufyrirtæki.

Til hvers?

Gerð námsefnis fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er, verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á.

Styrkumsóknum er skipt í tvennt og er hægt að sækja um almennan þróunarstyrk fyrir allt að 3 milljónum króna, en einnig er hægt að sækja um þróunar- og útgáfustyrk fyrir allt að 6 milljónum króna. 

Næsti umsóknarfrestur er til 16. febrúar 2026, kl. 15:00.

Senda fyrirspurn.

EN

Lesa meira
 

Nordplus Junior 2.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum, kennara þeirra og nemendur.

Til hvers?

Styrkir til samstarfsneta og þróunarverkefna skóla. Ferðastyrkir vegna nemendaheimsókna, kennaraskipta, þjálfun nema í starfsnámi og undirbúningsheimsóknir. Skólarnir sækja um og er gerð krafa um samstarf tveggja landa (í námsferðum) eða þriggja landa (í verkefnum). 

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Opna umsóknakerfi

Opið er fyrir umsóknir. Næsti umsóknarfrestur er 2. febrúar 2026.

Nánari upplýsingar

Lesa meira
 

Nordplus Voksen 2.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Stofnanir á sviði fullorðinsfræðslu, starfsþjálfunar og óformlegrar menntunar á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum, kennarar þeirra, starfsmenn og nemendur.

Til hvers?

Styrkir til samstarfsneta og þróunarverkefna skóla. Ferðastyrkir vegna nemendaheimsókna, heimsókna kennara og stjórnenda og undirbúningsheimsóknir. Skólarnir sækja um og er gerð krafa um samstarf tveggja landa (í námsferðum) eða þriggja landa (í verkefnum).

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Opna umsóknakerfi

Opið er fyrir umsóknir. Næsti umsóknarfrestur er 2. febrúar 2026.

 

Lesa meira
 

Nordplus Sprog 2.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Alla sem starfa að kennslu og miðlun norrænna tungumála og norrænna minnihlutatungumála á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum.

Til hvers?

Aðaláhersla tungumálahluta Nordplus er á verkefni sem vinna með að auka norrænan málskilning. Dæmi um það getur verið að þróa námsefni, tölvuleiki eða öpp, rannsóknir, fræðsla, ráðstefnur o.fl.

Einnig er hægt að sækja um styrk til að stofna samstarfsnet á sviði norrænna tungumála.

Lágmarksþátttaka er tvö þátttökulönd og athugið að umsóknum skal skilað á dönsku, sænsku, norsku eða ensku.

Upplýsingablað um Nordplus norrænu tungumálaáætlunina

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Opna umsóknakerfi

Opið er fyrir umsóknir. Næsti umsóknarfrestur er 2. febrúar 2026.

Lesa meira
 

Nordplus fyrir háskólastigið 2.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Háskóla, kennara og starfsmenn.

Til hvers?

Samstarfsnet háskóla og verkefni þeirra, t.d. stúdenta og starfsmannaskipti. Boðið upp á Express-mobility fyrir stúdenta þar sem lágmarksdvöl er aðeins 5 dagar. 

Opna umsóknarkerfi

Opið er fyrir umsóknir. Næsti umsóknarfrestur er 2. febrúar 2026. 

*Ef þú vilt sækja um Nordplus stúdenta- eða kennaraskipti þá sækir þú um til samstarfsneta háskólanna og færð nánari upplýsingar hjá alþjóðaskrifstofu þíns skóla.

Lesa meira
 

Nordplus Horizontal 2.2.2026 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Opið öllum sem vinna að þróun og nýsköpun menntamála hvort sem það eru opinberir aðilar, félagasamtök, skólar eða einkaaðilar.

Til hvers?

Styrkir til samstarfsverkefna og samstarfsneta menntastofnana á ólíkum skólastigum. Lágmarksþátttaka er þrjú þátttökulönd á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum. Nauðsynlegt er að verkefni tengi saman ólík menntastig eða menntageira.   

Myndband um Nordplus Horizontal (á ensku). 

Upplýsingablað um Nordplus Horizontal

Opna umsóknarkerfi

Opið er fyrir umsóknir. Næsti umsóknarfrestur er 2. febrúar 2026. 

Lesa meira
 

Umsóknarfrestur um styrki í Nordplus 2026 2.2.2026 Umsóknarfrestur

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki í Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar 2023–2027. Áhersluatriði áætlunarinnar fyrir árið 2026 er að efla hæfni og þekkingu til að styrkja samkeppnishæfni Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. 

Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2026, kl. 23:59 CET.

Lesa meira
 

Nýsköpunarsjóður námsmanna 5.2.2026 15:00 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Háskólanema í grunn- og meistaranámi. Umsjónarmenn innan háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja geta sótt í sjóðinn án þess að hafa fundið nema.

Til hvers?

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi og námi á meistarastigi við háskóla til sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.

Umsóknarfrestur:

Umsóknarfrestur er einu sinni á ári og er 5. febrúar 2026.

 

EN

Lesa meira
 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica