Á döfinni

Vefnámskeið á vegum Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar

  • 14.11.2025, 12:30 - 14:00, Vefstofa

Yfirskrift námskeiðsins er valdefling við starfsval með notkun veflægra upplýsinga um vinnumarkaðinn.

Dagsetning: 14. nóvember 2025

Tími: 12:30–14:00

Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar býður upp á vefnámskeiðið sem er hluti af #GlobalCareersMonth2025 og er ætlað náms- og starfsráðgjöfum sem vilja efla færni sína í notkun upplýsinga um vinnumarkaðinn í sinni leiðsögn.

Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig ráðgjafar geta aðstoðað ungt fólk og fullorðna við að nýta sér áreiðanlegar upplýsingar sem hjálpa þeim við að taka upplýstar ákvarðanir um framtíðarstörf og nám.

Athugið að námskeiðið fer fram á ensku.

Dagskrá:

  • Kynning á Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar
  • Inngangur að vinnumarkaðsupplýsingum (CEDEFOP)
  • Úrræði og gagnasöfn (CEDEFOP og EURES)
  • Dæmi um góðar starfsvenjur:
    • EURES Flandern (BE): Notkun EURES í ævilangri leiðsögn
    • „Find Your Career Code“: Verkefni frá Serbíu fyrir nemendur í starfsnámi

Skráning fer fram hér fyrir 13. nóvember 2025.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica