M | Þ | M | F | F | L | S |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4
þriðjudagur
|
5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13
fimmtudagur
|
14
föstudagur
|
15 | 16 |
17 | 18 | 19
miðvikudagur
|
20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Kennara, höfunda námsefnis og útgáfufyrirtæki.
Gerð námsefnis fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er, verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á. Áfram verður styrkumsóknum skipt í tvennt þar sem hægt verður að sækja um almennan þróunarstyrk fyrir allt að 2,0 milljónir króna, en einnig hægt að sækja um þróunar- og útgáfustyrk fyrir allt að 4,0 milljónir króna. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að veita að hámarki tveimur umsóknum þennan hámarksstyrk, að uppfylltum settum skilyrðum (sjá nánar kafla um skilyrði úthlutunar og forgangsatriði hér að neðan).
Lokadagur umsókna var 3. mars kl. 15:00. Lokað er fyrir umsóknir.
Lesa meiraBörn og ungmenni, á aldrinum 6-25 ára.
Auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína.
Umsóknarfrestur fyrri úthlutunar var 1. mars 2023 kl. 15:00.
Næsti umsóknarfrestur er 15. október og opnað verður fyrir umsóknir fljótlega.
Sjálfstætt starfandi fræðimenn
Hægt er að sækja um styrki til að vinna að ritun fræðirita og –greina, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku í ýmsu formi.
Umsóknarfrestur var 27. mars 2023 kl. 15:00.
Lesa meiraHáskóla, opinberar rannsóknastofnanir og opinber fyrirtæki.
Hagnýt rannsóknarverkefni hafa það að markmiði að afla nýrrar þekkingar og kunnáttu sem nýtist til að þróa nýjar vörur, verkferla eða þjónustu eða til að koma í kring umtalsverðum endurbótum á eldri vörum, verkferlum eða þjónustu. Verkefnið þarf að vera með skýr og raunhæf markmið um hagnýtingu.
Umsóknarfrestur er einu sinni á ári og rann út 15. mars 2023 kl. 15:00.
Sjá nánar í reglum Tækniþróunarsjóðs fyrir Hagnýt rannsóknarverkefni 2023 .
Lesa meiraMarkaður er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af rekstrargjöldum til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.
Markaður er markaðsstyrkur til fyrirtækja sem skiptist í tvo ólíka flokka: Markaðsþróun og Markaðssókn. Þessum flokkum er ætlað að styðja við fyrirtæki á mismunandi stigum í undirbúningi afurðar á markað.
Nánari lýsing á styrktarflokkunum má finna í reglum sjóðsins hér að neðan.
Umsóknarfrestur rann út 15. mars 2023 kl. 15:00.
Sjá nánar í reglum Tækniþróunarsjóðs vor 2023
Lesa meiraLítil og meðalstór fyrirtæki.
Til hvers?
Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur rann út 15. mars 2023 kl. 15:00.
Sjá nánar í reglum Tækniþróunarsjóðs vor 2023.
Lesa meiraUng nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla.
Sproti er ætlaður til að styðja við verkefni á byrjunarstigi.
Umsóknarfrestur rann út 15. mars 2023 kl. 15:00.
Sjá nánar í reglum Tækniþróunarsjóðs vor 2023
Lesa meiraRannís hefur verið falin umsýsla á seinni úthlutun Tónlistarsjóðs árið 2023.
Umsóknarfrestur: 15. september 2023, kl 15:00
Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir umsóknir í nýjan Tónlistarsjóð (sem Hljóðritasjóður verður hluti af) fyrir árið 2024 haustið 2023 og verður hann í umsýslu nýrrar Tónlistarmiðstöðvar samkvæmt frumvarpi til laga um tónlist.
Sjá feril málsins á Alþingi .
Sjá kynningu menningarráðherra á frumvarpinu í fyrstu umræðu.
Öll bókasöfn sem falla undir bókasafnalög og reglur bókasafnasjóðs ein eða með öðrum bókasöfnum eða með öðrum aðilum sem hafa það að markmiði að efla bókasöfn í landinu.
Sjóðurinn skal efla starfsemi bókasafna. Sjóðurinn styrkir skilgreindar rannsóknir og þróunar- og samstarfsverkefni á sviði bókasafna- og upplýsingamála. Sjóðnum er einnig heimilt að styrkja önnur verkefni til að efla faglegt samstarf bókasafna innanlands og utan.
Um er að ræða samfjármögnunarverkefnið CETP (Clean Energy Transition Partnership) og um fyrsta kall að ræða.
Lesa meiraFramkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst umsóknarfresti í Erasmus+ og European Solidarity Corps áætlununum fyrir árið 2023.
Lesa meiraUmsóknarfrestur er 7. mars 2023 kl. 16:00 að íslenskum tíma (17:00 CET).
Lesa meiraÍsland tekur nú þátt í LIFE áætlun Evrópusambandsins, samkeppnissjóði sem fjármagnað hefur verkefni á sviði loftslags- og umhverfismála frá árinu 1992. Kynningarfundur um LIFE verður haldin í Háskólanum á Akureyri 9. mars næstkomandi.
Lesa meiraOpnað hefur verið fyrir umsóknir um samstarfsverkefni á sviði menningar og lista undir Creative Europe. Umsóknarfrestur er 9. mars 2023 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 16:00 að íslenskum tíma (17:00 CET).
Lesa meira