Velkomin á vefstofuna „Inspiration Room“ með Marju Sokman
Fyrir hverja:
Vefstofan er opin öllum, en er sérstaklega ætluð þeim sem eru með Erasmus+ verkefni í gangi.
Ef þú vilt fá innblástur og nytsamleg ráð um hvernig hægt er að koma skilaboðum á framfæri á samfélagsmiðlum og í fréttatilkynningum, þá hvetjum við þig til að skrá þig á þetta gagnlega námskeið.
Á námskeiðinu fá þátttakendur:
-
Nýjar hugmyndir og innblástur til að auka sýnileika verkefna sinna
-
Hagnýt verkfæri til að efla miðlun og samskipti
-
Praktísk sniðmát sem auðvelda kynningarstarf
Hagnýtar upplýsingar:
-
Dagsetning og tími: 25. september kl. 12:00 - 13:00.
-
Tungumál: Enska
-
Hvar: Vefnámskeið. Hlekkur verður sendur á þátttakendur.
-
Kostnaður: Ókeypis
Um Marju Sokman:
Marju Sokman er fyrirlesari frá Eistlandi, sem hefur miðlað innblæstri og þekkingu víða um Evrópu. Marju er sérfræðingur í markaðsmálum og býr yfir víðtækri reynslu bæði úr einkageiranum og frá hinu opinbera. Hún hefur sérstakan áhuga á gervigreind og hvernig hægt er að nýta hana í miðlun upplýsinga. Marju þekkir vel hversu fjölbreytt, Erasmus+ áætlunin er og mun aðlaga efnið að aðstæðum þátttakenda.
Vefstofan er samstarfsverkefni landskrifstofa Erasmus+ á Norðurlöndunum.
Nánari upplýsingar veitir Eva Einarsdóttir, kynningarfulltrúi hjá Rannís.