Rannsóknaþing 2018 og afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs

7.5.2018

Rannís og Vísinda- og tækniráð bjóða til Rannsóknaþings fimmtudaginn 17. maí í Háteigi á Grand Hótel Reykjavík. Umfjöllunarefnið er markáætlun um öndvegissetur og klasa 2009-2015. Verkefnisstjórar verkefnanna sem urðu fyrir valinu kynna niðurstöður og árangur þeirra svo draga megi lærdóm af. Unnið er að undirbúningi nýrrar markáætlunar.* 

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs verða veitt vísindamanni sem þykir hafa skarað fram úr snemma á ferlinum og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi.

Dagskrá hefst kl. 14.00 og í lok hennar verður boðið upp á léttar veitingar.

Áherslur í vísindum

Samfélagsleg áhrif markáætlunar

DAGSKRÁ

  • 14.00     Forstöðumaður Rannís, Hallgrímur Jónasson, býður gesti velkomna
  • 14.05     Setning Rannsóknaþings
    Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir
  • 14.20     Markáætlun um öndvegissetur og klasa 2009-2015
    Guðrún Nordal, fyrrverandi formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs
    • Áhrif markáætlunar í að styrkja stöðu Íslands í alþjóðlega jarðhitageiranum    Sigurður Magnús Garðarsson, stjórnarformaður GEORG og sviðsforseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands - Sækja kynningu
    • Íslenskar vitvélar - íslenskt hugvit                                                                                          Kristinn R. Þórisson, prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og stjórnandi Vitvélastofnunar Íslands - Sækja kynningu
    • Gagnrýnin samfélagsrýni með áherslu á jafnrétti                        
      Irma Erlingsdóttir, forstöðumaður Háskóla Sameinuðu þjóðanna og Eddu, og dósent við Háskóla Íslands  - Sækja kynningu                                                          
  • 15.05     Markáætlun sem tæki til forgangsröðunar – hvað næst?
    Ragnhildur Helgadóttir, formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs              
  • 15.15     Forgangsröðun í vísindum
    Pallborðsumræður: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Kristján Leósson, forstöðumaður hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og formaður dómnefndar Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs, Ragnhildur Helgadóttir, formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs og Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa. Fundarstjóri er stjórnandi pallborðs.
  • 15.35     Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs
    Kristján Leósson, formaður dómnefndar, gerir grein fyrir valinu. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs, afhendir verðlaunin.
  • 16.00    Dagskrárlok, léttar veitingar

Fundarstjóri er Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík

*Markmiðið með markáætlun er að efla rannsóknir og nýsköpun, hvetja til árangursríkrar samvinnu ólíkra aðila innanlands og í alþjóðlegu samhengi og ýta undir verðmætasköpun og fjárfestingu í rannsóknum í atvinnulífinu. Rannsóknaklasar og öndvegissetur sem hljóta styrk úr markáætlun, eiga að hafa möguleika til að verða framúrskarandi í alþjóðlegu samhengi.

Markáætlun 2009-2015 studdi við þrjá rannsóknaklasa og öndvegissetur:

  • GEORG - Geothermal Research Group / alþjóðlegur rannsóknaklasi á sviði jarðhita
  • Vitvélastofnun Íslands - Icelandic Institute for Intelligent Machines
  • EDDA - öndvegissetur í jafnréttis- og margbreytileikarannsóknum - Center of Excellence in Gender, Equality and Diversity Research







Þetta vefsvæði byggir á Eplica