Nýsköpunarsjóður námsmanna 13.2.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Háskólanema í grunn- og meistaranámi. Umsjónarmenn innan háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja geta sótt í sjóðinn án þess að hafa fundið nema.

Til hvers?

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi og námi á meistarastigi við háskóla til sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.

Umsóknarfresur:

Umsóknarfrestur er einu sinni á ári. Næsti umsóknarfrestur er 7. febrúar 2025 kl. 15:00

EN

Lesa meira
 

Umsóknarfrestir Erasmus+ og ESC árið 2025 12.2.2025 - 1.10.2025 Umsóknarfrestur

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst umsóknarfresti í Erasmus+ og ESC fyrir árið 2025.

Lesa meira
 

Æskulýðssjóður 17.2.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Börn og ungmenni,  á aldrinum 6-25 ára.

Til hvers?

Auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína. 

Umsóknarfrestur: 

 Til og með 17. febrúar 2025 klukkan 15:00.

Senda fyrirspurn

 EN

Lesa meira
 

Þróunarsjóður námsgagna 17.2.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Kennara, höfunda námsefnis og útgáfufyrirtæki.

Til hvers?

Gerð námsefnis fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er, verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á.
Áfram verður styrkumsóknum skipt í tvennt þar sem hægt verður að sækja um almennan þróunarstyrk fyrir allt að 2,0 milljónir króna, en einnig hægt að sækja um þróunar- og útgáfustyrk fyrir allt að 4,0 milljónir króna


Umsóknarfrestur er 17. febrúar 2025 kl. 15:00.

Senda fyrirspurn.

EN

Lesa meira
 

Fyrirtækjastyrkur - Sproti 17.2.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla.

Til hvers?

Sproti er ætlaður til að styðja við verkefni á byrjunarstigi.

Umsóknarfrestur:

Til og með 17. febrúar 2025 kl. 15:00

 

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins sem finna má undir nytsöm skjöl og tenglar.

Lesa meira
 

Fyrirtækjastyrkur - Markaður 17.2.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Markaður er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af rekstrargjöldum til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.

Til hvers?

Markaður er markaðsstyrkur til fyrirtækja sem skiptist í tvo ólíka flokka: Markaðsþróun og Markaðssókn. Þessum flokkum er ætlað að styðja við fyrirtæki á mismunandi stigum í undirbúningi afurðar á markað.

Nánari lýsing á styrktarflokkunum má finna í reglum sjóðsins hér að neðan.

Umsóknarfrestur

Til og með 17. febrúar 2025 kl. 15:00.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins sem finna má undir nytsöm skjöl og tenglar.

Lesa meira
 

Fyrirtækjastyrkur - Vöxtur, Sprettur 17.2.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Lítil og meðalstór fyrirtæki.

Til hvers?

  • Vöxtur er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar.
  • Sprettur er öndvegisstyrkur innan Vaxtar.

Umsóknarfrestur:

Til og með 17. febrúar 2025 kl. 15:00.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins sem finna má undir nytsöm skjöl og tenglar.

Lesa meira
 

Hagnýt rannsóknarverkefni 17.2.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Háskóla, opinberar rannsóknarstofnanir og opinber fyrirtæki.

Til hvers?

Hagnýt rannsóknarverkefni hafa það að markmiði að afla nýrrar þekkingar og kunnáttu sem nýtist til að þróa nýjar vörur, verkferla eða þjónustu eða til að koma í kring umtalsverðum endurbótum á eldri vörum, verkferlum eða þjónustu. Verkefnið þarf að vera með skýr og raunhæf markmið um hagnýtingu.

Umsóknarfrestur:

Til og með 17. febrúar 2025 kl. 15:00.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins sem finna má undir nytsöm skjöl og tenglar.

Lesa meira
 

Nordplus Voksen 2.10.2023 Umsóknarfrestur, undirbúningsheimsóknir

Fyrir hverja?

Stofnanir á sviði fullorðinsfræðslu, starfsþjálfunar og óformlegrar menntunar á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum, kennarar þeirra, starfsmenn og nemendur.

Til hvers?

Styrkir til samstarfsneta og þróunarverkefna skóla. Ferðastyrkir vegna nemendaheimsókna, heimsókna kennara og stjórnenda og undirbúningsheimsóknir. Skólarnir sækja um og er gerð krafa um samstarf tveggja landa (í námsferðum) eða þriggja landa (í verkefnum).

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Opna umsóknakerfi

Næsti umsóknarfrestur, fyrir undirbúningsheimsóknir, er 1. október 2025. Næsti almenni umsóknarfrestur er 1. febrúar 2026.


Lesa meira
 

Nordplus Sprog 2.10.2023 Umsóknarfrestur, undirbúningsheimsóknir

Fyrir hverja?

Alla sem starfa að kennslu og miðlun norrænna tungumála og norrænna minnihlutatungumála á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum.

Til hvers?

Aðaláhersla tungumálahluta Nordplus er á verkefni sem vinna með að auka norrænan málskilning. Dæmi um það getur verið að þróa námsefni, tölvuleiki eða öpp, rannsóknir, fræðsla, ráðstefnur o.fl.

Einnig er hægt að sækja um styrk til að stofna samstarfsnet á sviði norrænna tungumála.

Lágmarksþátttaka er tvö þátttökulönd og athugið að umsóknum skal skilað á dönsku, sænsku, norsku eða ensku.

Upplýsingablað um Nordplus norrænu tungumálaáætlunina

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Opna umsóknakerfi

Næsti umsóknarfrestur, fyrir undirbúningsheimsóknir, er 1. október 2025. 
Næsti almenni umsóknarfrestur er 1. febrúar 2026.

Lesa meira
 

Nordplus Junior 2.10.2023 Umsóknarfrestur, undirbúningsheimsóknir

Fyrir hverja?

Fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum, kennara þeirra og nemendur.

Til hvers?

Styrkir til samstarfsneta og þróunarverkefna skóla. Ferðastyrkir vegna nemendaheimsókna, kennaraskipta, þjálfun nema í starfsnámi og undirbúningsheimsóknir. Skólarnir sækja um og er gerð krafa um samstarf tveggja landa (í námsferðum) eða þriggja landa (í verkefnum). 

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Opna umsóknakerfi

Næsti umsóknarfrestur, fyrir undirbúningsheimsóknir, er 1. október 2025. Næsti almenni umsóknarfrestur er 1. febrúar 2026.

Nánari upplýsingar

Lesa meira
 

SEF - Samstarfsnefnd um endur­menntun framhalds­skóla­kennara 17.2.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Framhaldsskóla og faggreinafélög framhaldsskólakennara sem bjóða endurmenntun, fyrirlestra og ráðstefnur.

Til hvers?

Hægt er að sækja um styrki til að skipuleggja sumarnámskeið framhaldsskólakennara, gestafyrirlestur á vegum fagfélags, þátttöku í ráðstefnum og vettvangsnám. Sótt er um ráðstefnu- og gestafyrirlesarastyrki að hausti en fyrir styrki til að halda sumarnámskeið að vori. 

Opið er fyrir umsóknir vegna sumarnámskeiða 2025. Lokadagur umsókna er 17. febrúar 2025 kl.15:00

 

Senda fyrirspurn.

 EN

Lesa meira
 

Nordplus fyrir háskólastigið 1.2.2024 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Háskóla, kennara og starfsmenn.

Til hvers?

Samstarfsnet háskóla og verkefni þeirra, t.d. stúdenta og starfsmannaskipti. Boðið upp á Express-mobility fyrir stúdenta þar sem lágmarksdvöl er aðeins 5 dagar. 

Opna umsóknarkerfi

Næsti umsóknarfrestur er 1. febrúar 2026. 

*Ef þú vilt sækja um Nordplus stúdenta- eða kennaraskipti þá sækir þú um til samstarfsneta háskólanna og færð nánari upplýsingar hjá alþjóðaskrifstofu þíns skóla.

Lesa meira
 

Nordplus Horizontal 1.2.2024 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Opið öllum sem vinna að þróun og nýsköpun menntamála hvort sem það eru opinberir aðilar, félagasamtök, skólar eða einkaaðilar.

Til hvers?

Styrkir til samstarfsverkefna og samstarfsneta menntastofnana á ólíkum skólastigum. Lágmarksþátttaka er þrjú þátttökulönd á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum. Nauðsynlegt er að verkefni tengi saman ólík menntastig eða menntageira.   

Myndband um Nordplus Horizontal (á ensku). 

Upplýsingablað um Nordplus Horizontal

Opna umsóknarkerfi

Næsti umsóknarfrestur er 1. febrúar 2026. 

Lesa meira
 

Stúdentakjallarinn: Application lab 4.2.2025 16:00 - 19:00 Stúdentakjallarinn

Hvenær: 4. febrúar kl. 16:00 - 19:00

Lesa meira
 

Kynning í húsnæði Rannís á samstarfsverkefnum í Erasmus+ (KA2) 5.2.2025 14:00 Rannís, Borgartún 30

Hvenær: 5. febrúar kl. 14:00

Lesa meira
 

Kynningarfundur um Eurostars-3 og Innowwide 6.2.2025 12:30 - 13:30 Veffundur

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 6. febrúar 2025 kl. 12:30-13:30 á Teams.

Lesa meira
 

Creative Europe styrkir bókaútgefendur 11.2.2025 Umsóknarfrestur

Styrkir eru veittir til bókaútgefenda til þýðinga, dreifingar og kynningar á evrópskum bókmenntum. Umsóknarfrestur er til 11. febrúar 2025.

Lesa meira
 

Vísindakakó fyrir forvitna krakka á Bókasafni Hafnarfjarðar 15. febrúar 15.2.2025 13:00 - 14:00 Bókasafn Hafnarfjarðar

Dr. Margrét Helga Ögmundsdóttir ræðir við gesti um rannsóknir sínar sem prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands.

Lesa meira
 

Varðmenn gegn netvættum – Styrkjum skjaldborgina! 17.2.2025 12:00 - 13:00 Gróska, Fenjamýri

Rannís, Eyvör (NCC-IS) og Miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS) bjóða á viðburðinn „Varðmenn gegn netvættum – Styrkjum skjaldborgina!“ mánudaginn 17. febrúar í Fenjamýri, Grósku.

Lesa meira
 

Upplýsingadagur COST 2025 18.2.2025 9:00 - 10:45 Rafrænn upplýsingafundur

Þann 18. febrúar nk. verður haldinn opinn upplýsingadagur COST á netinu. Tilgangur COST verkefna er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknasviðum.

Lesa meira
 

Örnámskeið um náms- og starfsráðgjöf: Fimm víddir umhverfisvænnar starfsráðgjafar 18.2.2025 14:00 - 15:15 Vefnámskeið

Euroguidance á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum bjóða upp á röð örnámskeiða tengd náms- og starfsráðgjöf. Þann 18. febrúar 2025 kl. 14:00-15:15 að íslenskum tíma verður fjallað um fimm víddir umhverfisvænnar starfsráðgjafar.

Lesa meira
 

NordForsk auglýsir opið kall á sjáfbærri heilbrigðis- og félagsþjónustu fyrir aldraða 20.2.2025 Umsóknarfrestur

Áhersla er lögð sjálfbæra heilbrigðis- og félagsþjónustu aldraðra. Umsóknarfrestur er 20. febrúar 2025 klukkan 12:00 að íslenskum tíma.

Lesa meira
 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica