Íslendingar verja 2.8% af vergri landsframleiðslu í rannsóknir og þróun

22.8.2007

Íslendingar vörðu um 28 milljörðum króna til rannsókna og þróunar árið 2005.  Aukning í krónum frá árinu 2003 er 4 milljarðar eða um 16%.  Verg landsframleiðsla jókst á sama tíma um 20%.  Stærstum hluta var varið til heilbrigðismála eða um 9,6 milljörðum króna.  Til samanburðar var um 11% varið til fiskveiða og landbúnaðar eða um 3,1 milljarði króna.  Þessa tölfræði og fleiri upplýsingar má finna í nýútkomnu heftiRANNÍS um rannsóknir og þróun á Íslandi.

Nánari upplýsingar um tölfræðina má fá hjá:

Þorvaldi Finnbjörnssyni, sviðsstjóra greiningarsviðs, (S. 515-5808 / thorvald@rannis.is) og

Elvu B. Aðalsteinsdóttur, sérfræðingi á greiningarsviði, (S. 515-5812 / elva@rannis.is).









Þetta vefsvæði byggir á Eplica