Opið fyrir köll í nýsköpunarsjóð framkvæmdastjórnar ESB 30.11.2023 9:00 - 11:30 Í streymi (online)

Kynningarfundir verða haldnir 30. nóvember og 7. desember

Lesa meira
 

Arctic Research and Studies - Norðurslóðafræði 1.12.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Fyrir starfsmenn háskóla og stofnana sem tengjast norðurslóðafræðum.

Til hvers?

Til að efla langtíma samstarf íslenskra og norskra stofnana með sóknarstyrkjum vegna undirbúningsvinnu við gerð umsókna í alþjóðlega samkeppnissjóði.

Umsóknarfrestur

Opið er fyrir umsóknir til og með 1. desember 2023. 

EN

Lesa meira
 

Áttunda norræna-kínverska norðurslóðaráðstefnan 3.12.2023 - 6.12.2023 Ráðstefna

Vakin er athygli á því að áttunda norræna-kínverska norðurslóðaráðstefnan verður haldin í Guangzhou í Kína, 3. - 6. desember 2023. Ráðstefnan er helguð vísindasamvinnu og þekkingu í þágu sjálfbærni á norðurslóðum. 

Lesa meira
 

Námskeið fyrir byrjendur í umsóknaskrifum í Horizon Europe 4.12.2023 - 5.12.2023 9:00 - 12:00 Námskeið

Sérfræðingar Rannís bjóða upp á tvö námskeið í umsóknarskrifum þann 4. og 5. desember nk. frá klukkan 9:00-12:00. Fyrra námskeiðið verður haldið á staðnum og er takmarkaður sætafjöldi í boði. Seinna námskeiðið er á netinu.

Lesa meira
 

NordForsk rannsóknaverkefni á sviði grænna umskipta 5.12.2023 Umsóknarfrestur

Á vegum NordForsk hefur verið opnað fyrir umsóknir um verkefnastyrki innan Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á sviði grænna umskipta. Umsóknarfrestur er til 5. desember 2023.

Lesa meira
 

Creative Europe vinnustofa um samstarfsverkefni 7.12.2023 10:00 Rafrænn viðburður

Creative Europe / Rannís – býður til vinnustofu um umsóknarferil evrópskra samstarfsverkefna fimmtudaginn 7. desember næstkomandi kl. 10:00 

Lesa meira
 

Erasmus+ býður í aðventukaffi 7.12.2023 14:30 Borgartún 30, fundarsalur 3. hæð

Fimmtudaginn 7. desember kl. 14:30 hjá Rannís, Borgartúni 30.

Langar þig að fræðast um Erasmus+ áætlunina og þau tækifæri sem eru í boði með óformlegu kaffispjalli á aðventunni?

Lesa meira
 

Rafrænn kynningarfundur um Nordplus 8.12.2023 10:00 - 11:00 Fjarfundur

Nordplus er menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og inniheldur fimm undiráætlanir á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, fullorðinsfræðslu, á háskólastigi, á sviði tungumála Norðurlandanna og svo áætlun sem vinnur þvert á skólastig. Næsti umsóknarfrestur um verkefnastyrk er 1. febrúar 2024 og því verður haldinn kynningarfundur á Teams þann 8. desember 2023 kl. 10:00 - 11:00. 

Lesa meira
 

Tónlistarsjóður/Tónlistarmiðstöð 12.12.2023 Umsóknarfrestur

Nýr tónlistarsjóður í umsýslu nýrrar Tónlistarmiðstöðvar tók við af fyrri tónlistarsjóði samkvæmt tónlistarlögum í maí 2023.

SJÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR Á VEF TÓNLISTARMIÐSTÖÐVAR

EN 

Lesa meira
 

Opið fyrir umsóknir í Digital Europe 12.12.2023 8:30 - 15:00 Rafrænn viðburður

Þann 21. nóvember sl. opnaði fimmta umferð Digital Europe áætlunarinnar og er umsóknarfrestur 21. mars 2024.

Lesa meira
 

Haustfundur Tækniþróunarsjóðs 2023 14.12.2023 15:00 - 16:00 Gróska

Haustfundur Tækniþróunarsjóðs 2023 verður haldinn fimmtudaginn 14. desember, kl. 15:00-16:00 í Grósku.

Lesa meira
 

Langar þig í nám erlendis? 19.12.2023 16:00 Kex Hostel

Upplýsingastofa um nám erlendis og SÍNE standa fyrir kynningarfundi um nám erlendis, þriðjudaginn 19. desember kl. 16:00 á Kex hostel.

Lesa meira
 

Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku 31.12.2023 Opið fyrir umsóknir allt árið

Fyrir hverja?

Bókaútgefendur sem skráðir eru virðisaukaskattskyldir aðilar skv. 5. gr. laga um virðisaukaskatt með atvinnugreinarnúmerið 58.11.0 sem bókaútgáfa. Umsækjandi sé fjárhagslega ábyrgur fyrir útgáfu bókar sem sótt er um. Umsækjandi sé í skilum við hið opinbera og skal leggja fram staðfestingu sem fæst á þjónustuvef Rsk .

Með „bók“ er átt við ritverk eða ritröð sem er að minnsta kosti átta blaðsíður að lengd og bundið eða fest á hliðstæðan hátt í kjöl. Undir hugtakið bók falla einnig hljóðupptökur af lestri og önnur rafræn útgáfa slíkra verka. Ritröð er safn ritverka í mörgum bindum með sameiginlegum heildartitli, en hvert bindi sjálfstæð heild.

Til hvers?

Endurgreiðsla hluta kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku sem eru aðgengilegar almenningi með opinberri sölu, láni eða leigu byggir á lögum um stuðning við útgáfu bóka á íslensku nr. 130/2018 .

Umsóknarfrestur
Opið fyrir umsóknir allt árið. Umsókn um staðfestingu ásamt fylgigögnum skal berast eigi síðar en níu mánuðum eftir útgáfudag bókarinnar.

Áður en umsókn er send inn ætti umsækjandi að kynna sér Handbók sjóðsins og aðrar upplýsingar á þessari síðu, sérstaklega Atriði sem tefja afgreiðslu umsókna.

EN

Lesa meira
 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica