Creative Europe vinnustofa um samstarfsverkefni

28.11.2023

Creative Europe / Rannís – býður til vinnustofu um umsóknarferil evrópskra samstarfsverkefna fimmtudaginn 7. desember næstkomandi kl. 10:00 

Megin markmið evrópskra samstarfsverkefna er að koma á framfæri menningu, listum og listamönnum landa á milli og auka sýnileika evrópskra skapandi greina.
Samstarfsverkefni eru ætluð fyrirtækjum, stofnunum og samtökum af öllum stærðum og gerðum í menningu og listum.


Á vinnustofunni verður farið  yfir þau atriði sem þarf að hafa í huga þegar sótt er um í áætlun Creative Europe.

Vinnustofan sem er 7. desember 2023 er opin öllum en nauðsynlegt er að skrá sig:

Skráning á vinnustofu 

Lokadagur skráningar er 6. desember. Teams hlekkur verður sendur á skráða þátttakendur daginn fyrir fundinn en við getum ekki ábyrgst að fundarboð berist ef fyrirvarinn er stuttur.

Samstarfsverkefni eru í tveimur þrepum:

  • Þrep 1, minnst þriggja landa samstarf og hægt er að sækja um stuðning allt að 200.000 evrur / 80% af kostnaði
  • Þrep 2, minnst fimm landa samstarf þar sem hægt er að sækja um stuðning allt að 1.000.000 evrur / 70% af kostnaði. 
Áherslur framkvæmdastjórnar eru einnig grænar, rafrænar og sjálfbærar. 
Umsóknarfrestur er til 23. janúar 2024.

Hér má finna umsóknargögn: European Co-operation Projects 2024 Call









Þetta vefsvæði byggir á Eplica