Fréttir: febrúar 2023

24.2.2023 : Nordplus stendur fyrir tengslaráðstefnu á Íslandi um norrænan tungumálaskilning

Nordplus norræna tungumálaáætlunin stendur fyrir tengslaráðstefnu í Hveragerði dagana 18.-20. september 2023. Ráðstefnan er ætluð fólki sem starfar á einhvern hátt við miðlun og kennslu norrænna tungumála, en einnig þeirra sem vinna með opinber minnihlutatungumál á Norðurlöndunum. Rannís, sem hefur umsjón með tungumálaáætlun Nordplus, sér um skipulagningu ráðstefnunnar.

Lesa meira

24.2.2023 : Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna auglýsir eftir umsóknum

Hlutverk sjóðsins er að styðja við starfsemi fræðimanna sem starfa sjálfstætt í sinni fræðigrein til ritunar efnis á íslensku. Umsóknarfrestur er 27. mars 2023, kl. 15:00.

Lesa meira

22.2.2023 : Kynningarfundur í Háskólanum á Akureyri um LIFE áætlunina

Ísland tekur nú þátt í LIFE áætlun Evrópusambandsins, samkeppnissjóði sem fjármagnað hefur verkefni á sviði loftslags- og umhverfismála frá árinu 1992. Kynningarfundur um LIFE verður haldin í Háskólanum á Akureyri 9. mars næstkomandi.

Lesa meira

22.2.2023 : Bláa hagkerfið - nýtt kall

Hið nýja samfjármögnunarverkefni um Bláa hagkerfið, „Sustainable Blue Economy Partnership“, hefur auglýst eftir umsóknum í fyrsta kall verkefnisins. Búið er að opna fyrir forumsóknir með umsóknarfresti til 14. apríl n.k. 

Lesa meira

22.2.2023 : Opið fyrir framhaldsumsóknir um skattfrádrátt

 Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2023 á miðnætti.

Lesa meira
ISS_24519_00123

21.2.2023 : Útgjöld til rannsókna og þróunarstarfs á Íslandi aukast verulega

Útgjöld til rannsókna og þróunar á árinu 2021 hækka um 25% frá árinu 2020. Um 15,8 milljarða aukning er á útgjöldum fyrirtækja til rannsókna- og þróunarstarfs og 2,4 milljarða aukning hjá háskólum. Telja má víst að skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna hjá fyrirtækjum sé að hafa hvetjandi áhrif en útgjöld fyrirtækja aukast þrefalt meira en aukin opinber stuðningur.

Lesa meira

20.2.2023 : Tækifæri fyrir félags- og hugvísindafólk innan Horizon Europe

Nýlega var gefið út yfirlitsskjal yfir öll köll í Horizon Europe vinnuáætluninni fyrir 2023-24 þar sem farið er fram á aðkomu hug- og félagsvísinda í verkefnum. 

Lesa meira
Radherrann

20.2.2023 : Creative Europe - MEDIA úthlutanir ársins 2022

Tólf umsóknir bárust í fimm mismunandi sjóði Creative Europe - MEDIA á árinu 2022 frá íslensku kvikmyndagerðarfólki. Alls var sótt um u.þ.b. þrjár milljónir evra.

Lesa meira

17.2.2023 : Upplýsingadagur og tengslaráðstefna ESB um Circular bio-based Europe

Viðburðurinn verður haldinn 20. apríl nk. frá kl. 07:00 að íslenskum tíma. Þátttaka er möguleg í gegnum netið og/eða með viðveru i Brussel.

Lesa meira
Iss_6429_03132

14.2.2023 : Úthlutun styrkja úr Innviðasjóði árið 2023

Alls barst sjóðnum 41 umsókn. Þar af voru 33 gildar umsóknir sem voru metnar af fagráði. Samtals var sótt um 1.319 milljónir króna til sjóðsins; 913 milljónir til sex verkefna á vegvísi og um 406 milljónir til 27 verkefna utan vegvísis.

Lesa meira

14.2.2023 : Umsóknarfrestur Æskulýðssjóðs framlengdur til 1. mars

Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð hefur verið framlengdur til 1. mars 2023 klukkan 15:00. 

Lesa meira

14.2.2023 : Uppfært: Nýsköpunarsjóður námsmanna - framlengdur umsóknarfrestur

Nýr umsóknarfrestur Nýsköpunarsjóðs námsmanna er 15. febrúar nk. klukkan 15:00. Var áður 6. febrúar 2023 klukkan 15:00.

Lesa meira

9.2.2023 : Kynningarfundur um styrki Tækniþróunarsjóðs - fyrirtækjastyrkir og skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 16. febrúar nk. kl. 12:00-13:30 í streymi (Teams).

Lesa meira
Máluð mynd af blómum

9.2.2023 : Auglýst er eftir umsóknum úr Barna­menningar­sjóði

Hlutverk sjóðsins er að styðja fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.

Lesa meira

9.2.2023 : Vel heppnaður samráðsfundur fyrir þátttakendur í verkefnum á vegum Uppbyggingarsjóðs EES

Samráðsfundur fyrir þátttakendur í verkefnum á vegum Uppbyggingarsjóðs EES var haldinn þann 1. febrúar sl. á vegum Rannís. Fundurinn fór fram bæði á Nauthóli og í fjarfundi. 

Lesa meira
Framadagar-2023

9.2.2023 : Rannís á Framadögum í HR

Rannís tekur þátt í Framadögum sem haldnir eru í Háskólanum í Reykjavík, fimmtudaginn 9. febrúar, frá klukkan 10.00 til 14:00

Lesa meira

8.2.2023 : Kynningarfundur um styrki Tækniþróunarsjóðs með áherslu á Hagnýt rannsóknarverkefni

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 15. febrúar nk. kl. 12:00 til 13:30 í húsnæði Rannís, Borgartúni 30 í Hvammi á 3ju hæð, og á Teams.

Lesa meira

8.2.2023 : Kynningarfundur um Eurostars-3

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 17. febrúar nk. kl. 9:00-10:00 í húsnæði Rannís, Borgartúni 30 í Hvammi á 3ju hæð.

Lesa meira

8.2.2023 : Úthlutun úr Vinnustaðanámssjóði 2022

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur að tillögu stjórnar Vinnustaðanámssjóðs úthlutað styrkjum til vinnustaðanáms fyrir árið 2022.

Lesa meira

3.2.2023 : Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð

Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum Hagnýt rannsóknarverkefni, Sproti, Vöxtur og Markaður. 
Umsóknarfrestur er 15. mars 2023, kl. 15:00.

Lesa meira

1.2.2023 : Auglýst eftir styrkumsóknum í Hljóðritasjóð

Veittir eru styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist. Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna að hámarki til eins árs. Umsóknarfrestur er 15. mars næstkomandi kl. 15:00.

Lesa meira









Þetta vefsvæði byggir á Eplica