Auglýst eftir styrkumsóknum í Hljóðritasjóð

1.2.2023

Veittir eru styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist. Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna að hámarki til eins árs. Umsóknarfrestur er 15. mars næstkomandi kl. 15:00.

Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla íslenska hljóðritagerð í tónlist með fjárhagslegum stuðningi við útgáfu hljóðrita, samkvæmt reglum um Hljóðritasjóð.

Umsóknarfrestur er 15. mars 2023 kl. 15:00.

Framhaldsstyrkir eru ekki veittir til verkefna sem áður hafa hlotið styrk úr sjóðnum. Útgáfa má ekki hafa átt sér stað áður en umsókn um styrk berst Hljóðritasjóði.

Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á síðu sjóðsins. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.

Hægt er að senda fyrirspurn á hljodritasjodur@rannis.is  til að fá nánari upplýsingar.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica