Umsóknarfrestur Æskulýðssjóðs framlengdur til 1. mars

14.2.2023

Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð hefur verið framlengdur til 1. mars 2023 klukkan 15:00. 

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:

  • Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra
  • Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða
  • Nýjungar og þróunarverkefni
  • Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa.

Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum.

Hvað er styrkt?

Verkefni fyrir börn og ungmenni á vegum æskulýsfélaga og æskulýðssamtaka (Sjá nánar 1. gr. í reglum sjóðsins).

Að þessu sinni verður lögð áhersla á að styrkja verkefni sem stuðla að kynningu, nýliðun og nýsköpun í æskulýðsstarfi. 

Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica