Æskulýðssjóður 1.3.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Börn og ungmenni,  á aldrinum 6-25 ára.

Til hvers?

Auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína. 

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur rann út 15. febrúar 2024, kl. 15:00

Senda fyrirspurn

 EN

Lesa meira
 

Sviðslistasjóður 2.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?
Atvinnusviðslistahópa.

Til hvers?
Veittir eru styrkir til einstakra verkefna.

Úthlutun.
Að jafnaði liggur úthlutun fyrir í janúar ár hvert.

Sértakir styrkir til óperuverkefna (45 milljónir) 2024-2025
Umsóknarfrestur var 23. febrúar 2023, kl 15:00


Umsóknarfrestur í Sviðslistasjóð vegna verkefna 2024-2025 var 2. október 2023 kl: 15:00

 

Senda fyrirspurn

EN

Lesa meira
 

Jules Verne 2.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Vísinda- og fræðimenn á öllum sviðum grunnvísinda og hagnýtra rannsókna.

Til hvers?

Til samstarfsverkefna á sviði vísinda og tækni milli Íslands og Frakklands.

Umsóknarfrestur

Á tveggja ára fresti.

Næsti umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 2. október 2023.

EN

Lesa meira
 

Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna 2.10.2023 Umsóknarfrestur fyrir ný verkefni

Fyrir hverja?

Fyrirtæki sem eru eigendur rannsókna- eða þróunarverkefna. Háskólar og stofnanir teljast ekki fyrirtæki í skilningi þessara laga.

Til hvers?

Fyrirtæki sem hafa fengið staðfestingu Rannís á rannsókna- eða þróunarverkefni eiga rétt á frádrætti á tekjuskatti skv. lögum nr. 152/2009. Sé álagður tekjuskattur lægri en ákvarðaður frádráttur, eða lögaðila ekki ákvarðaður tekjuskattur vegna skattalegs taps, þá er frádrátturinn greiddur út

Umsóknarfrestur: 

 

  • Vegna nýrra verkefna: Opið var fyrir umsóknir um ný verkefni til og með 2. október klukkan 24:00.
  • Vegna framhaldsumsókna: Umsóknafrestur fyrir framhaldsumsóknir um Skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna er 2. apríl 2024.



EN

Lesa meira
 

Listamannalaun 2.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur og tónskáld. Sjá nánar undir Spurt og svarað.

Tilgangur

Að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög [ 57/2009.]

Umsóknartímabil vegna listamannalauna 2024.

Umsóknarfrestur var 2. október 2023, kl 15:00

Mánaðarleg upphæð listamannalauna árið 2024 er 538.000 kr

Senda fyrirspurn

EN

Lesa meira
 

Nordplus Sprog 2.10.2023 Umsóknarfrestur, undirbúningsheimsóknir

Fyrir hverja?

Alla sem starfa að kennslu og miðlun norrænna tungumála og norrænna minnihlutatungumála á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum.

Til hvers?

Aðaláhersla tungumálahluta Nordplus er á verkefni sem vinna með að auka norrænan málskilning. Dæmi um það getur verið að þróa námsefni, tölvuleiki eða öpp, rannsóknir, fræðsla, ráðstefnur o.fl.

Einnig er hægt að sækja um styrk til að stofna samstarfsnet á sviði norrænna tungumála.

Lágmarksþátttaka er tvö þátttökulönd og athugið að umsóknum skal skilað á dönsku, sænsku, norsku eða ensku.

Upplýsingablað um Nordplus norrænu tungumálaáætlunina

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Umsóknarfrestir: Næsti umsóknarfrestur er 1. október 2024. 

Nánari upplýsingar

Lesa meira
 

Nordplus Voksen 2.10.2023 Umsóknarfrestur, undirbúningsheimsóknir

Fyrir hverja?

Stofnanir á sviði fullorðinsfræðslu, starfsþjálfunar og óformlegrar menntunar á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum, kennarar þeirra, starfsmenn og nemendur.

Til hvers?

Styrkir til samstarfsneta og þróunarverkefna skóla. Ferðastyrkir vegna nemendaheimsókna, heimsókna kennara og stjórnenda og undirbúningsheimsóknir. Skólarnir sækja um og er gerð krafa um samstarf tveggja landa (í námsferðum) eða þriggja landa (í verkefnum).

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Umsóknarfrestir: Næsti umsóknarfrestur er 1. október 2024. 


Nánari upplýsingar

Lesa meira
 

Nordplus Junior 2.10.2023 Umsóknarfrestur, undirbúningsheimsóknir

Fyrir hverja?

Fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum, kennara þeirra og nemendur.

Til hvers?

Styrkir til samstarfsneta og þróunarverkefna skóla. Ferðastyrkir vegna nemendaheimsókna, kennaraskipta, þjálfun nema í starfsnámi og undirbúningsheimsóknir. Skólarnir sækja um og er gerð krafa um samstarf tveggja landa (í námsferðum) eða þriggja landa (í verkefnum). 

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir tvisvar á ári, í október og febrúar ár hvert.

Umsóknarfrestir: Næsti umsóknarfrestur er 1. október 2024. 


Nánari upplýsingar

Lesa meira
 

Íþróttasjóður 3.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Íþrótta- og ungmennafélög, og fyrir þá sem starfa að útbreiðslu- og fræðsluverkefnum á sviði íþrótta. Einnig þá sem starfa að rannsóknum á sviði íþrótta.

Lágmarksstyrkur til verkefna er 250 þúsund krónur.

Til hvers?

Styrkirnir eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna, að þessu sinni verður horft sérstaklega til verkefna sem stuðla að inngildingu í íþróttum. Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.

Umsóknarfrestur:

Næsti umsóknarfrestur verður 1. október 2024 klukkan 15:00.


Senda fyrirspurn

EN

Lesa meira
 

SEF - Samstarfsnefnd um endur­menntun framhalds­skóla­kennara 5.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Framhaldsskóla og faggreinafélög framhaldsskólakennara sem bjóða endurmenntun, fyrirlestra og ráðstefnur.

Til hvers?

Hægt er að sækja um styrki til að skipuleggja sumarnámskeið framhaldsskólakennara, gestafyrirlestur á vegum fagfélags, þátttöku í ráðstefnum og vettvangsnám. Sótt er um ráðstefnu- og gestafyrirlesarastyrki að hausti en fyrir styrki til að halda sumarnámskeið að vori. 


Lokað er fyrir umsóknir vegna styrkja um sumarnámskeið 2024. Lokafrestur til að skila inn var 15. febrúar 2024 kl. 15:00.

 

Senda fyrirspurn.

 EN

Lesa meira
 

Framkvæmdadagar Horizon 2023 5.10.2023 7:30 - 10:30 Veffundur

Í tilefni framkvæmdadaga Horizon (Horizon Implementations Days) er boðið upp á þrjá fundi á netinu í október næstkomandi.

Lesa meira
 

Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla 6.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Kennara, náms- og starfsráðgjafa, skólameistara og aðra stjórnendur framhaldsskóla sem starfað hafa í a.m.k. fimm ár við kennslu- eða stjórnunarstörf í framhaldsskóla. Þeir ganga fyrir sem ekki hafa hlotið launað námsorlof áður (frá grunn- eða framhaldsskólakennslu).

Til hvers?

Tilgangur námsorlofs er að veita þeim sem um það sækja tækifæri til að efla þekkingu sína og hæfni í starfi.

Umsóknarfrestur

Lokað er fyrir umsóknir. Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2024-2025 var til 6. október 2023, kl 15.00.


Senda fyrirspurn.

EN

Lesa meira
 

Upplýsingadagar og tengslaráðstefna Horizon Europe 11.10.2023 - 19.10.2023 Upplýsingadagar Horizon Europe

Upplýsingadagar og tengslaráðstefna framkvæmdastjórnar ESB verður haldin 11. til 19. október nk. í tengslum við vinnuáætlun klasa 4, stafræn tækni, iðnaður og geimur (Digital, Industry & Space). Um er að ræða viðburð á netinu.

Lesa meira
 

Upplýsingadagur og tengslaráðstefna Horizon Europe 17.10.2023 Upplýsingadagar Horizon Europe

Dagana 17. og 18. október 2023 stendur framkvæmdastjórn ESB fyrir upplýsingadegi og tengslaráðstefnu um köll ársins 2024 í klasa 5; loftslagsmál, orka og samgöngur (Climate, Energy and Mobility). Um er að ræða viðburð á netinu.

Lesa meira
 

Upplýsingadagur og tengslaráðstefna Horizon Europe - félags- og hugvísindi 18.10.2023 - 19.10.2023 Upplýsingadagar Horizon Europe

Dagana 18.-19. október stendur framkvæmdastjórn ESB fyrir upplýsingadegi og tengslaráðstefnu um næstu köll í klasa 2, félags- og hugvísindi (Culture, Creativity and Inclusive Society). Um er að ræða viðburð á netinu. 

Lesa meira
 

Sóknarstyrkir 20.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Stofnanir, fyrirtæki, vísindafólk og fræðimenn sem sækja um í alþjóðlega rannsóknasjóði. Forgangur er veittur þeim sem sækja um í Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB, en mögulegt er að styrkja annað samstarf samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.

Til hvers?

Til undirbúnings umsókna í alþjóðlega rannsóknasjóði, einkum Horizon Europe.

Umsóknarfrestur

Einu sinni á ári að hausti.

Umsóknarfrestur var til og með 20. október 2023, kl. 15:00. Sótt er um í gegnum mínar síður Rannís .

EN

Lesa meira
 

Nýsköpunarþing 2023 - Líf í lífvísindum 26.10.2023 13:30 - 15:00 Gróska

Nýsköpunarþing 2023 verður haldið fimmtudaginn 26. október í Grósku frá kl. 13:30-15.00.

Lesa meira
 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica