Æskulýðssjóður 15.10.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Börn og ungmenni,  á aldrinum 6-25 ára.

Til hvers?

Auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína. 

Umsóknarfrestur: 

 Til og með 15. október 2025 klukkan 15:00.

Senda fyrirspurn

 EN

Lesa meira
 

Listamannalaun 2.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur,  tónskáld og kvikmyndahöfunda. Sjá nánar undir Spurt og svarað.

Tilgangur

Að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög [ 57/2009.]

Umsóknarfrestur vegna listamannalauna 2026.

Umsóknarfrestur var 1. október 2025, kl 15:00. 

 
Sjá tilkynningu um að opnað hafi verið fyrir umsóknar sem var birt 6. ágúst 2025. 

Mánaðarleg upphæð listamannalauna árið 2025 er 560.000 kr.

Senda fyrirspurn

EN

Lesa meira
 

Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna 2.10.2023 Umsóknarfrestur fyrir ný verkefni

Fyrir hverja?

Öll fyrirtæki sem eru eigendur rannsóknar- eða þróunarverkefna sem, þau bera sjálf fjárhagslega áhættu af. Háskólar og stofnanir teljast ekki fyrirtæki í skilningi þessara laga (lög nr. 152/2009).

Sjá einnig skilgreiningu hér neðar á síðunni.

Til hvers?

Markmiðið er að efla rannsóknir og þróunarstarf og bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja með því að veita þeim rétt til skattfrádráttar vegna kostnaðar við nýsköpunarverkefni.

Umsóknarfrestur: 

  • Umsóknarfrestur rennur út 1. október fyrir ný verkefni klukkan 23:59

  • Verður 1. apríl fyrir framhaldsverkefni klukkan 23:59.

EN

Lesa meira
 

Sviðslistasjóður 2.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?
Atvinnusviðslistahópa.

Til hvers?
Veittir eru styrkir til einstakra verkefna.

Úthlutun.
Að jafnaði liggur úthlutun fyrir í janúar ár hvert.

Umsóknarfrestur í Sviðslistasjóð 2025
Umsóknarfrestur 1. október 2025, kl 15:00. 

Umsækjendur eru hvattir til að skila ekki umsókn á síðasta degi.
Sjá auglýsingu eftir umsóknum sem var birt 6. ágúst 2025.
Tímalengd verkefna í 2026 úthlutun miðast við leikárið 2026-27 og/eða 2027-28.

EN

Lesa meira
 

SEF - Samstarfsnefnd um endur­menntun framhalds­skóla­kennara 7.10.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Framhaldsskóla og faggreinafélög framhaldsskólakennara sem bjóða endurmenntun, fyrirlestra og ráðstefnur.

Til hvers?

Hægt er að sækja um styrki til að skipuleggja sumarnámskeið framhaldsskólakennara, gestafyrirlestur á vegum fagfélags, þátttöku í ráðstefnum og vettvangsnám. Sótt er um ráðstefnu- og gestafyrirlesarastyrki að hausti en fyrir styrki til að halda sumarnámskeið að vori. 

Opið er fyrir umsóknir um gestafyrirlesara og ráðstefnustyrki.
Umsóknarfrestur er 7. október 2025 kl.15:00.
 

Senda fyrirspurn.

 EN

Lesa meira
 

Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla 7.10.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Kennara, náms- og starfsráðgjafa, skólameistara og aðra stjórnendur framhaldsskóla sem starfað hafa í a.m.k. fimm ár við kennslu- eða stjórnunarstörf í framhaldsskóla. Þeir ganga fyrir sem ekki hafa hlotið launað námsorlof áður (frá grunn- eða framhaldsskólakennslu).

Til hvers?

Tilgangur námsorlofs er að veita þeim sem um það sækja tækifæri til að efla þekkingu sína og hæfni í starfi.

Umsóknarfrestur er 7. október 2025 kl. 15:00

Senda fyrirspurn.

EN

Lesa meira
 

Umsóknarfrestur um undirbúningsheimsóknir í Nordplus 1.10.2025 Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur um styrki fyrir undirbúningsheimsóknir í Nordplus Junior, leik- grunn- og framhaldsskólastig, Nordplus Voksen, fullorðinsfræðsla og Nordplus Sprog, norræn tungumál er 1. október 2025. 

Lesa meira
 

Umsóknarfrestir Erasmus+ og ESC í október 2025 1.10.2025 Umsóknarfrestur

Um er að ræða umsóknarfresti í æskulýðstarfi, European Solidarity Corps, Erasmus+ aðild og inngildingarátaki DiscoverEU.

Lesa meira
 

Íþróttasjóður 1.10.2025 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Íþrótta- og ungmennafélög, og fyrir þá sem starfa að útbreiðslu- og fræðsluverkefnum á sviði íþrótta. Einnig þá sem starfa að rannsóknum á sviði íþrótta.

Lágmarksstyrkur til verkefna er 250 þúsund krónur.

Til hvers?

Styrkirnir eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna. Sérstaklega þá til verkefna fyrir jaðarsetta hópa.

Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.

Umsóknarfrestur:

 Umsóknarfrestur er: 1. október 2025 klukkan 15:00.

Senda fyrirspurn

EN

Lesa meira
 

Culture Moves Europe – ferðastyrkir til einstaklinga 1.10.2025 - 30.4.2026 Umsóknarfrestur

Opið er fyrir umsóknir um ferðastyrki fyrir listamenn og starfsfólk í menningargeira. Umsóknarfrestur rennur út 30. apríl 2026.

Lesa meira
 

Umsóknarfrestur um gæðaviðurkenningu eTwinning 1.10.2025 8:00 - 23:59 Umsóknarfrestur

Frestur til að sækja um gæðaviðurkenningu eTwinning, National Quality Label, verður til 1. október 2025. Við hvetjum öll sem staðið hafa fyrir vel heppnuðu verkefni að sækja um. 

Lesa meira
 

Erasmus+ á Menntakviku Háskóla Íslands 2025 3.10.2025 9:00 - 10:30 Menntakvika Háskóla Íslands

Starfsmenntateymi Erasmus+ tekur þátt í málstofunni 
Raddir úr framhaldsskólanum: Upplifun, stuðningur og sýn til framtíðar á Menntakviku HÍ.

Lesa meira
 

Digital Europe 7.10.2025 15:00 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Fyrirtæki, einstaklinga, samtök og opinbera aðila. 

Til hvers?

Digital Europe styrkjaáætlunin (DEP) er ætlað að móta stafræna framtíð Evrópu og styðja við verkefni þar sem áherslan er að innleiða háþróaða stafræna tækni og innviði. Digital Europe fjármagnar verkefni á eftirfarandi sex lykilsviðum:

  • Ofurtölvur
  • Gervigreind
  • Netöryggi
  • Stafræn hæfni
  • Nýting stafrænna lausna / stafrænar miðstöðvar
  • Hálfleiðarar

Umsóknarfrestir

Mismunandi er eftir áhersluatriðum áætlunarinnar hvenær árs opnað er fyrir nýjar umsóknir.

Opin köll birtast í umsóknargátt ESB,  Funding & Tender Opportunities

Þann 12. júní 2025 opnaði fyrir umsóknir á sviði Öruggrar dulkóðunar fyrir mikilvæga innviði og Netöryggi í heilbrigðiskerfinu. 

Umsóknarfrestur 7. október 2025 kl. 15:00 (CET: 17:00).

Sjá nánar hér: Transition to post-quantum Public Key Infrastructures

og hér: Dedicated action to reinforcing hospitals and healthcare providers

EN

Lesa meira
 

Orkuskipti – CET samfjármögnun 2025 9.10.2025 Umsóknarfrestur

Auglýst er eftir umsóknum í tengslum við orkuskipti. Orkuskiptin eru lykilatriði í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og til að ná markmiðum okkar þarf samhent átak.

Lesa meira
 

Fögnum Erasmus+ dögunum 13.-18. október með stæl! 13.10.2025 - 18.10.2025 Erasmus+ dagar

Erasmus dagar 2025 fara fram dagana 13. - 18. október. Um er að ræða sex daga tímabil þar sem athygli er vakin á Erasmus+ áætluninni og tækifærum hennar með samstilltu átaki. Landskrifstofan hvetur styrkhafa til að nota tækifærið og deila framlagi sínu og reynslu. 

Lesa meira
 

Eru evrópskir háskólar í fararbroddi? - ávinningur af þátttöku íslenskra háskóla í evrópskum háskólanetum 14.10.2025 13:00 Norræna húsið

Málþing, 14. október kl. 13.00 í Norræna húsinu, um ávinning og áskoranir háskólanetanna fyrir nemendur, starfsfólk, stöðu háskólanna og samfélagið. 

Lesa meira
 

Tækifæri til vaxtar - námskeið á Akureyri 22.10.2025 - 23.10.2025 Akureyri

Ráðgjafar Rannís í samstarfi við Drift EA standa fyrir námskeiði og fyrirtækja- og einstaklingsráðgjöf 22.-23. október næstkomandi.

Lesa meira
 

Námskeið í gerð styrkumsókna fyrir rannsókna og nýsköpunaráætlun ESB, Horizon Europe og Evrópska rannsóknaráðið (ERC) 28.10.2025 - 29.10.2025 Hannesarholt, Grundarstíg 10, Rvk

Þann 28. 29. og 30. október nk. standa Rannís og Miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH) á Íslandi í samstarfi við Enterprise Europe Network (EEN) á Íslandi og Félag sérfræðinga í rannsóknaþjónustu (ICEARMA) fyrir námskeiði um hvernig á að undirbúa og skrifa umsókn í Horizon Europe og ERC.

Lesa meira
 

Félags- og vinnumálaáætlun ESB (EaSI)auglýsir nýtt call „Innleiðing aðgerðaáætlunar í atvinnumálum fatlaðs fólks“ 30.10.2025 Umsóknarfrestur

Verkefnin eiga að efla nýsköpun og þróa lausnir sem bæta aðgengi og þátttöku fatlaðs fólks á vinnumarkað. Umsóknarfrestur er 30. október kl. 16:00 að íslenskum tíma.

Lesa meira
 

Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni 30.10.2025 14:00 - 15:30 Gróska

Rannís, Hugverkastofan, Íslandsstofa og Nýsköpunarsjóðurinn Kría bjóða til Nýsköpunarþings 2025 í Grósku 30. október kl. 14:00-15:30. Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025 verða veitt á þinginu.

Lesa meira
 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica