Tækifæri til vaxtar - námskeið á Akureyri

30.9.2025

Ráðgjafar Rannís í samstarfi við Drift EA standa fyrir námskeiði og fyrirtækja- og einstaklingsráðgjöf 22.-23. október næstkomandi.

Tækifæri til vaxtar er námskeið ætlað fyrirtækjum og frumkvöðlum á Norðurlandi. Námskeiðið verður haldið í húsnæði Drift EA að Standgötu 1 á Akureyri. Í boði er einnig einstaklings- og fyrirtækjaráðgjöf.

Námskeiðið hentar:

  • Litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Norðurlandi
  • Frumkvöðlum
  • Öllum sem vilja auka möguleika sína á styrkjum, tengslaneti og vexti, bæði hér heima og á alþjóðavettvangi

Leiðbeinendur:
Mjöll Waldorff og Sigþrúður Guðnadóttir, sérfræðingar á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís og alþjóðateymi sviðsins. Þær starfa einnig að verkefninu Enterprise Europe Network. Mjöll og Sigþrúður búa að áralangri reynslu þegar kemur að stuðnings- og styrkjaumhverfinu, bæði hér innanlands og erlendis.

Dagskrá námskeiðsins: Tækifæri til vaxtar

8:30-9:00 Skráning og morgunkaffi

  • 9:00-9:15 Kynning á dagskrá og markmiðum
  • 9:15-9:45 Innlendir styrkir, stuðningur við nýsköpun
  • 9:45-10:45 Erlendir styrkir

10:45-11:00 Kaffihlé og tengslamyndun

  • 11:00-12:00 Horizon Europe
  • 12:00-12:30 Greining á styrkhæfi

12:30-13:30 Hádegisverður og tengslamyndun

  • 13:30-14:00 Enterprise Europe Network
  • 14:00-14:30 Pitch þjálfun
  • 14:30-15:00 Lokaorð og næstu skref

Dagsetning: 22. október 2025, kl. 8.30-15.00

Skráning á námskeið 22. október

Fyrirtækja- og einstaklingsráðgjöf, er í boði þann 23. október og verður sérstök skráning  á námskeiðinu sjálfu.

Staðsetning: Drift EA, Strandgata 1, Akureyri

Námskeiðið er í samstarfi:









Þetta vefsvæði byggir á Eplica