Alltaf er opið fyrir að senda inn umsóknir í Fræ og Þróunarfræ

31.3.2021

Umsóknir sem berast fyrir 20. apríl nk. munu fara fyrir fagráð sjóðsins í næsta matsferli.

Í febrúar 2021 var reglum breytt í Fræ og Þróunarfræ. Núna er alltaf opið fyrir umsóknir í sjóðinn og úthlutun tilkynnt að lágmarki tvisvar á ári. Eins hefur upphæð hámarksstyrks verið hækkuð í 2 milljónir króna.

Innsendar umsóknir sem berast í síðasta lagi 20. apríl 2021 í Fræ/Þróunarfræ munu fara í mat til fagráðs sjóðsins.

Stefnt er að úthlutun til verkefna samhliða öðrum fyrirtækjastyrkjum sjóðsins um mánaðamótin maí/júní.

Fræ og Þróunarfræ hafa það að markmiði að styðja við hugmyndir og verkefni á frumstigi sem getur leitt af sér stærra þróunarverkefni.

Fræ er undirbúningsstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja eða einstaklinga og er sniðinn að verkefnum á hugmyndastigi eða á frumstigi í þróun afurðar.

Þróunarfræ er forkönnunarstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja og einstaklinga til að ráðast í þróunarsamvinnuverkefni.

Allar nánari upplýsingar um Fræ/Þróunarfræ eru að finna á síðu sjóðsins









Þetta vefsvæði byggir á Eplica