Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokknum Sproti, Vöxtur/Sprettur og Markaðsstyrkur.

Umsóknarfrestur er til 16. september 2019, kl. 16:00

8.8.2019

TS-logoTækniþróunarsjóður styrkir nýsköpunarverkefni sem geta aukið samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Auglýst er eftir umsóknum í eftirfarandi flokka:

· Sproti er fyrir ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á byrjunarstigi.

· Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar og er Sprettur öndvegisstyrkur innan Vaxtar.

· Markaðsstyrkur er ætlaður litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem verja að lágmarki 10% af veltu sinni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári. Styrkinn er hægt að sækja um vegna sérstaks markaðsátaks en einnig til uppbyggingar innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.

Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís. Nánari upplýsingar, reglur og leiðbeiningar eru að finna á tths.is.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica