Fórnarfóðring fyrir háhita jarðhitaborholur - verkefni lokið

Fréttatilkynning verkefnisstjóra.

13.10.2020

Undanfarin ár hefur verið aukinn áhugi á að bora dýpri jarðhitaborholur til að afla meira orku sem þýðir hærra hitastig og þrýstingur og tærandi umhverfi. Þetta leiðir til tæringaráraunar og varmaþenslu og samdráttar sem getur leitt til brots á fóðringum. 

Markmið verkefnisins var framkvæma rannsóknar og þróunarvinnu á frumhönnun fórnarfóðringar sem getur varið stálfóðringarnar í jarðhitaborholum gegn tæringu og álagi vegna varmaþensluáhrifa svo að styrkur borholufóðringa minnki ekki.

Árangur og helsti afrakstur verkefnisins:

  • Uppsetning á tölvuvæddu varma og spennulíkani af háhitaborholu með og án fórnarfóðringar (Tölvulíkan I).

  • Líkanagreining á áhrifum fórnarfóðringarinnar á spennudreifingu, tognun og hitaálagi í fóðringum háhitaborhola vegna spennuhækkana í borholufóðringum við kælingu og upphitun.

  • Mælingar á efniseiginleikum á völdum efnum og efnisval fyrir alla hluta fórnarfóðringarinnar.

  • Líkanagreining og hönnun á festingum fórnarfóðringu við framleiðslufóðringu (Tölvulíkan II).

  • Líkanagreining á tengingum fórnarfóðringunnar (Tölvulíkan III).

  • Greining á tæringar- og hitaþoli valinna efna eftir efnisprófanir í jarðhitaumhverfi.

  • Frumhönnun fórnarfóðringar liggur fyrir.

Með fórnarfóðringunni væri hægt að auka líftíma jarðhitaborhola og spara Íslenskum orkufyrirtækjum mikinn viðhaldkostnað og kostnað vegna gerðar nýrra borhola. Núverandi lausnir á markaði eru ekki hæfar til að standast hátt hitastig og tærindi jarðhitaumhverfi jarðhitaborhola.

Sjá nánar á:  http://gerosion.com/

HEITI VERKEFNIS: : Fórnarfóðring fyrir háhita jarðhitaborholur
Verkefnisstjóri: Sigrún Nanna Karlsdóttir
Styrkþegi: Gerosion ehf.
Tegund styrks: Sproti
Fjöldi styrkára: 2
Fjárhæð styrks: 19.731.000 IS kr. alls

VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica