Kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð

13.8.2018

Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð næstkomandi miðvikudag 15. ágúst kl. 8:30-10:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fundarsalnum Kviku á 1. hæð. Boðið verður upp á léttan morgunverð. 

Skrá þátttöku

Dagskrá

Sigurður Björnsson, sviðsstjóri á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, gerir grein fyrir:

  • Styrkjaflokkum Tækniþróunarsjóðs
  • Skattfrádrætti vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar
  • Reglugerð um skattaívilnun til erlendra sérfræðinga

Reynsla félagsmanna SI af umsóknaferli Tækniþróunarsjóðs

  • Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri, eTactica
  • Jón Atli Magnússon, vöruþróunarstjóri, Hampiðjunni

Kynningarfundur-15-agust-2018









Þetta vefsvæði byggir á Eplica