Markaðssetning á THEME í Evrópu - verkefni lokið

Fréttatilkynning verkefnisstjóra

14.8.2017

Á verktímabilinu var Theme sett í nýjar umbúðir fyrir markaðssetningu, undirbúið var nýtt kynningarefni, nýjar sölurásir og hafin var markaðssetning til núverandi notenda sem og notenda á nýjum markaðssviðum.

Markmið verkefnisins var að ná beinu sambandi við núverandi notendur Theme í Evrópu og kynna rannsóknarhugbúnaðinn fyrir nýjum mögulegum notendum á nýjum fræðisviðum.
Á verktímabilinu var Theme sett í nýjar umbúðir fyrir markaðssetningu, undirbúið var nýtt kynningarefni, nýjar sölurásir og hafin var markaðssetning til núverandi notenda sem og notenda á nýjum markaðsviðum og þverfaglegum vísindamarkaði í mótun.

Heiti verkefnis: Markaðssetning á THEME í Evrópu
Verkefnisstjóri: Guðberg K. Jónsson, Atferlisgreiningu / Pattern Vision
Tegund styrks: Markaðsstyrkur
Fjöldi styrkára: 1
Fjárhæð styrks: 10 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: 153476061

VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.

Listi yfir um 200 núverandi leyfishafa/notendur Theme í Evrópu lá fyrir og lokið er vinnu við að kortleggja fræðilegt tengslanet þeirra notenda og lista þannig upp mögulega nýja notendur. Á tímabilinu hafa yfir 50 nýir notendur bæst í hópinn í Evrópu.

Gerður var samanburður á T-algrími við aðrar almennar og sértækar aðferðir sem notast er við við greiningu á þeim fræðasviðum sem varan hefur verið markaðssett á. Niðurstöður hafa þegar verið kynntar á nokkrum ráðstefnum í Evrópu á tímabilinu, m.a. Measuring Behavior 2016; 8th European Conference on Behavioural Biology; VII European Congress of Methodology; og 9th MASI meeting: Methodology for the analysis of social interaction. Niðurstöður hafa í framhaldinu verið birtar í völdum vísindaritum og notaðar í kynningarefni sem sent hefur verið á markhópa verkefnisins.

Þá er einnig lokið endurgerð vörumerkja og heimasíðu, m.a. með rafrænt sölukerfi og notendagagnagrunn

Listi yfir afrakstur verkefnisins

  • Ný heimasíða
  • Nýtt kynningarefni
  • Ný vörumerki
  • Rafrænt sölukerfi
  • Rafrænn notendagagnagrunnur
  • Útgáfa/bók: Book of Abstracts MASI 2016: Methodology for the analysis of social interaction
  • Útgáfa/bók: Discovering Hidden Temporal Patterns in Behavior and Interaction: T-Pattern Detection and Analysis with THEME, Springer Science 2016
  • Útgáfa/tímarit: Systematic Observation: Engaging Researchers in the Study of Daily Life as It Is Lived, Frontiers 2017
  • Útgáfa/bók: The temporal structure of multimodal communication, Springer Science, 2018








Þetta vefsvæði byggir á Eplica