Þróun og framleiðsla á lágnatríum salti úr hafsjó - verkefni lokið

Fréttatilkynning verkefnisstjóra

1.7.2015

Framleiðsla fyrirtækisins, Arctic Sea Minerals, er unnin úr efnaríkum jarðsjó á Reykjanesi en þar er um að ræða einstaka náttúruauðlind.

Ofneysla af natríum (e. sodium) veldur of háum blóðþrýstingi sem eykur stórlega líkur á hjarta- og æðasjúkdómum. Í hinum vestræna heimi neytir fólk að meðaltali 8-11g/dag af  salti en Alþjóða heilbrigðisstofnunin WHO hefur ráðlagt fólki að neyta ekki meira en 5g/dag (salt er 40% natríum). Megnið af því natríum (e.sodium) sem fólk neytir, eða 75%  kemur úr unnum matvælum og eru matvælaframleiðendur undir þrýstingi frá yfirvöldum að draga úr natríum (e. sodium) notkun í sinni framleiðslu. Á næstu árum má búast við að stjórnvöld í Evrópu og Bandaríkjunum setji lög og reglur um hámark natríum (e. sodium) í matvælum. Talið er að markaðurinn fyrir „sodium reduction“-lausnir muni á næstu árum vaxa um 11% á ári og er áætlað að heildarverðmæti markaðarins  verði  1 milljarður USD árið 2018. Hefðbundið salt er um 40% natríum og er verkefnið því að draga úr salti í matvælum. Hér er um flókið verkefni að ræða því salt hefur bæði tæknilega (kemíska) virkni í matvælum og flókin áhrif á bragðgæði matvara. 

Heiti verkefnis: Þróun og framleiðsla á lágnatríum salti úr hafsjó
Verkefnisstjóri: Sarah Branci, Arctic Sea Minerals ehf.
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2013-2014
Fjárhæð styrks: 25 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: 131658-061
 

VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI. 

ASM hefur þróað og fengið einkaleyfi á framleiðsluaðferð á nýrri tegund af saltkorni sem hefur 30-60% minna magn af natríum en sambærilega tæknilegu virkni og sambærileg bragðgæði og hefðbundið matarsalt. Framleiðslan er unnin úr efnaríkum jarðsjó á Reykjanesi en þar er um að ræða einstaka náttúruauðlind á heimsvísu. Varan er  fyrsta 100% náttúrulega lausnin á markaðnum þar sem öll innihaldsefnin (magnesíum, kalíum og snefilefni) er tengd saman í hverju saltkorni. Lausnin uppfyllir kröfur matvælaframleiðanda um engin viðbætt efni á merkingum (e. clean label), tæknilega virkni og hámarks bragðgæði. Fyrstu niðurstöður úr gæða- og skynmatsprófunum hafa verið jákvæðar varðandi mögulega markaðssetningu á vörunni.  

Til að leysa tæknileg mál og til að framleiða sýnishorn af vörunni hefur ASM þróað og smíðað frumgerð að framleiðslubúnaði sem framleiðir heilsusalt úr jarð- og hafsjó af Reykjanesi. Gæða- og skynmatspróf á sýnunum voru framkvæmd í samvinnu við Matís og alþjóðlegan matvælaframleiðanda. Samið var við við  HS Orku um aðgengi að aðföngum fyrir framleiðsluna og var verkefnið  kynnt fyrir tilvonandi fjárfestum í samvinnu við leiðandi fjármálaráðgjafafyrirtæki. 

Styrkurinn gerði ASM kleift að undirbúa tæknilega og markaðslega þætti sem var nauðsynlegt að klára áður en verkefnið væri kynnt fyrir fjárfestum á fyrri hluta árs 2015. 

Listi yfir afrakstur verkefnisins: 

  • Frumgerð að framleiðslubúnaði sem framleiðir Single-grain heilsusalt samkvæmt einkaleyfisvarðri aðferð
  • Sýnishorn af Single-grain heilsusalti framleitt samkvæmt einkaleyfisvarðri aðferð
  • Samkomulag við PepsiCo um gæðaprófanir fyrir Frito Lays snakk
  • Kynning fyrir Mannvit og HS Orku varðandi kísilútfellingar
  • Skýrsla frá Matís vegna skynmatsprófana
  • Skýrsla frá Actlabs Kanada vegna samsetningar saltsins
  • Skýrsla frá Nýsköpunarmiðstöð vegna samsetningar saltkornana
  • Fjárfestakynning frá A/F
  • Term sheet samkomulag við HS Orku
  • Fjárhagsáætlun (Excel)









Þetta vefsvæði byggir á Eplica