Opið fyrir umsóknir í Fræ/Þróunarfræ

25.10.2022

Fræ og Þróunarfræ hafa það að markmiði að styðja við hugmyndir og verkefni á frumstigi sem geta leitt af sér stærri þróunarverkefni. Umsóknir sem berast fyrir 1. nóvember nk. verða teknar fyrir af fagráði sjóðsins í næstu lotu.

Alltaf er opið fyrir umsóknir en umsóknir sem berast fyrir 1. nóvember nk. verða teknar fyrir af fagráði sjóðsins í næstu lotu. Tilkynnt verður um úthlutun í desember 2022.

Fræ er undirbúningsstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja eða einstaklinga og er sniðinn að verkefnum á hugmyndastigi eða á frumstigi í þróun afurðar

Þróunarfræ er forkönnunarstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja og einstaklinga til að ráðast í þróunarsamvinnuverkefni. Hugmyndin að verkefninu þarf að fela í sér að leitað er nýrra lausna eða tækni til að leysa áskoranir og bæta lífskjör fólks í þróunarlöndum.

Styrkupphæð getur numið allt að tveimur milljónum króna og verkefninu skal lokið innan 12 mánaða

Allar nánari upplýsingar um Fræ/Þróunarfræ eru að finna á síðu sjóðsins.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica