Rannís auglýsir eftir umsóknum í Tækniþróunarsjóð

8.2.2022

Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum Sproti, Vöxtur og Markaður. Umsóknarfrestur er 15. mars 2022, kl. 15:00.

  • Sproti er fyrir ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á byrjunarstigi. Fyrirkomulag umsóknarkerfis í Sprota er breytt.
  • Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar og er Sprettur öndvegisstyrkur innan Vaxtar.

Markaður er nú skipt í tvo ólíka styrktarflokka og því mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel reglur sjóðsins. Sjóðurinn er ætlaður litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem verja að lágmarki 10% af veltu sinni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.

Umsóknarfrestur er 15. mars 2021, kl. 15:00.

Fyrirhugað er að halda rafræna kynningarfundi í febrúar og verða þeir auglýstir um leið og dagsetningar liggja fyrir.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Nánari upplýsingar á síðu Tækniþróunarsjóðs.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica