Tilnefningar til Vaxtarsprotans 2021

30.6.2021

Óskað er eftir tilnefningum fyrir Vaxtarsprotann 2021. Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannís. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

Tilnefna fyrirtæki til Vaxtarsprotans

Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip með áletrun og sérstakan verðlaunaskjöld til eignar. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til þeirra tveggja sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 millj. kr. og hins vegar sem velta á bilinu 100-1.000 millj. kr.

Skilyrði er að frumkvöðull sé til staðar í fyrirtækinu og fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann: Kerecis (2021), Carbon Recycling International (2019), Kaptio (2018), Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007).

Velta meira en 1 milljarði í fyrsta sinn

Veitt er sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. Við leitum því einnig eftir ábendingum um sprotafyrirtæki sem hafa náð því marki.

Vaxtarsprotinn 2021 verður afhentur í Kaffi Flóru í Laugardal fimmtudaginn 2. september kl. 9-10.

Skrá mig









Þetta vefsvæði byggir á Eplica