Undirbúningur markaðssóknar Alvican í Skandinavíu - verkefni lokið

Fréttatilkynning verkefnisstjóra

6.7.2023

Nýverið fékk Alvican ehf. styrk frá Rannís til að hefja undirbúning á markaðssókn á lausnum sínum í Skandinavíu. Með markaðsstyrknum frá Tækniþróunarsjóði var Alvican ehf. gert kleift að greina markaði og undirbúa markaðssókn á erlendri grundu, þ.e. útbúa kynningarefni, sækja ráðstefnur og fleira. Gerð var nánari samkeppnisgreining með samstarfsaðilum í Skandinavíu og markaðsathugun.  

Lausnir Alvican eru íslenskt hugvit en félagið skilgreinir sig sem velferðartæknifyrirtæki sem hefur þróað lausnir í umönnun eldri borgara og til að lengja sjálfstæða búsetu eldri borgara og auka öryggi þeirra. Alvican er framsækið þróunarfyrirtæki sem hefur framleitt bæði tæknibúnað og hugbúnað til að takast a við það verkefni sem blasir við vegna öldrun þjóða.Logo tækniþróunarsjóðs

Mikil þörf er á bæði innlendum og erlendum mörkuðum fyrir lausnir Alvican en innleiðing a velferðartækni verður lykilinn að umönnum á ört vaxandi hópi eldri borgara í vestrænum heimi en fjoölga þyrfti heilbrigðisststarfsfólki um 45% fyrir árið 2040 samkvæmt greiningu McKinsey sem gerð var fyrir íslenska ríkið, ef ekki yrðu innleiddar lausnir og velferðartækni. Kostnaður við heilbrigðiskerfið vegna öldrun þjóðarinnar myndi aukast um 90%. Með nýjum ferlum, velferðartækni og nýsköpun myndi ekki þurfa nema 3% fjölgunar heilbrigðisstarfsfólks og um 30% hækkunar á heildarkostnaði árið 2040.

Lausnir Alvican eru nú þegar komnar á markað á Íslandi og em notaðar af einstaklingum, stofnunum og sveitarfélögum út um allt land. Lausnirnar hafa verið gefnar út fyrir iOS og Android en einnig eru þær notaðar á vefviðmóti í spjaldtölvum og hefðbundnum tölvum.

HEITI VERKEFNIS: Undirbúningur markaðssóknar Alvican í Skandinaviu

Verkefnisstjóri: Arnar Ægisson

Styrkþegi: Alvican ehf.

Tegund styrks: Markaður

Fjöldi styrkára: 1

Fjárhæð styrks: 10.000.000 ISL kr. alls

VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI









Þetta vefsvæði byggir á Eplica