Undirbúningur markaðssóknar Einrúms í Danmörku og Svíþjóð - verkefni lokið

Fréttatilkynning verkefnsisstjóra

30.8.2017

Styrkur Tækniþróunarsjóðs til markaðssetningar Einrúms ehf. í Danmörku og Svíþjóð skapaði svigrúm sem gerði markvissan undirbúning og markaðssókn mögulega.

Einrúm sérhæfir sig í hönnun prjónauppskrifta á flíkum og þróun á prjónabandi úr íslenskri ull. Hönnun og band mynda stílhreina og fágaða heild sem byggir á Slow Fashion hugmyndafræðinni þar sem viðskiptavinurinn er sjálfur framleiðandi vörunnar og leggur þar með sitt af mörkum við nýtingu efnisins og þeirra auðlinda sem við höfum aðgang að. Styrkur Tækniþróunarsjóðs til markaðssetningar Einrúms í Danmörku og Svíþjóð skapaði svigrúm sem gerði markvissan undirbúning og markaðssókn mögulega. Þetta hefur skilað sér í umtalsvert meiri vitund um vöruna og hugmyndafræði þá sem þar liggur að baki og er góður grunnur til þess að fylgja sölu- og markaðsmálum eftir. Þar að auki hefur styrkur frá Tækniþróunarsjóði skapað það svigrúm sem er frumkvöðlum nauðsynlegt til geta þroskast sem stjórnendur í takti við verkefnið.

Heiti verkefnis: Undirbúningur markaðssóknar Einrúms í Danmörku og Svíþjóð
Verkefnisstjóri: Kristín Brynja Gunnarsdóttir, Einrúmi ehf.
Tegund styrks: Markaðsstyrkur
Styrkár: 2016
Fjárhæð styrks: 10 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: 164071061









Þetta vefsvæði byggir á Eplica