Bridging Textiles to the Digital Future - verkefni lokið

Fréttatilkynning verkefnisstjóra

29.10.2020

Á Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi hefur undanfarin þrjú staðið yfir rannsóknin: Bridging textiles to the digital future - Að byggja stafræna textílbrú inn í framtíðina, en rannsóknin var styrkt af Tækniþróunarsjóði Rannís frá 2017 – 2020 og lauk henni formlega 31. ágúst sl.

Verkefnið hefur falið í sér að rannsaka, greina og endurheimta mikilvæga þekkingu, tækni og aðferðir í vefnaði, setja upp rafrænan gagnagrunn, með vefnaðarmunstrum og uppskriftum, á heimasíðu Textílmiðstöðvar og vefa nýjar útgáfur af gömlu munstrunum í stafrænum TC2 vefstól. Markmið með verkefninu var einnig að færa stafræna vefnaðartækni til Íslands og kynna hana fyrir hönnuðum, textíllistamönnum og vefurum, en ennþá er aðeins einn TC2 stafrænn vefstóll til á Íslandi. Það er því nauðsynlegt og brýnt að kynna stafræna tækni hér og færa þannig fjórðu iðnbyltinguna í textíl hingað til lands. TC2 stendur fyrir thread controller 2 en nú eru liðin 25 ár síðan Vibeke Vestby og Tronrud Engineering í Noregi byrjuðu að framleiða stafræna vefstóla og því löngu tímabært að innleiða þessa tækni hér á landi.Logo tækniþróunarsjóðs

Með tilkomu rafræna gagnagrunnsins á heimasíðu Textílmiðstöðvar Íslands/vefnaður hafa opnast möguleikar til að búa til ný munstur, sem byggja á gömlum vefnaðarmunstrum, vefnaðarprufum og sýnishornum og nýta þau til dæmis í iðnaðarframleiðslu og nýsköpun í textílhönnun. Það er von Textílmiðstöðvar Íslands að með tilkomu gagnagrunnsins verði áhugi á vefnað endurvakinn hér á landi en hann hefur fylgt þjóðinni frá landnámi. Það er afar óheppilegt með tilliti til umhverfissjónarmiða og kolefnisfótspors Íslendinga að ekki sé til iðnaðarvefstóll hér á landi, en þeir voru allir seldir héðan eftir að Gefjunnar- og Álafossverksmiðjurnar voru lagðar niður um 1990.

Hinn rafræni gagnagrunnur er nú opinn fyrir almenning, textíliðnaðinn, textílhönnuði og vefara en þar er hægt að fá innblástur til nýrra verka á sviði textíls. Við flutning á gömlum munstrum yfir í stafrænar skrár er mögulegt að hagnýta aftur hefðbundna íslenska verk- og tæknimenningu og flétta inn í hönnun og framleiðslu á textílvöru á nýjan hátt. Með því að nýta rannsóknina, gagnagrunninn og / eða aðstöðu í Kvennaskólanum á Blönduósi, skapast tækifæri til að gera nýjar frumútgáfur, frumgerðir og vefa sýnishorn í TC2 stafræna vefstólnum. Textílmiðstöð Íslands mun einnig beita sér fyrir og hvetja til þess að iðnaðarvefstóll/vefstólar og Jacquardvefstóll verði aftur tiltækir hér á landi þannig að mögulegt verði að framleiða hágæða ullarefni t.d. vaðmál, tweed efni og værðarvoðir úr íslenskri ull.

Gagnagrunnurinn er aðgengilegur á heimasíðu Textílmiðstöðvar: https://www.textilmidstod.is/ undir flipanum ,,Vefnaður”.

Heiti verkefnis: Bridging Textiles to the Digital Future

Verkefnisstjóri: Ragnheiður Björk Þórsdóttir

Styrkþegi: Textílmiðstöð Íslands og Þekkingarsetrið á Blönduósi ses

Tegund styrks: Hagnýt rannsóknaverkefni

Fjöldi styrkára: 3

Fjárhæð styrks: 29.080.000 ISL kr. alls

VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica