Lúpína í nýju ljósi – trefjaefni framtíðar - verkefni lokið

Fréttatilkynning verkefnisstjóra

27.10.2022

Úr alaskalúpínu er hægt að framleiða umhverfisvænt trefjaefni sem nýta má í matvælaumbúðir eða byggingarefni

Verkefninu „Lúpína í nýju ljósi, trefjaefni framtíðar“ er nú lokið og hefur markmiðum þess verið náð. Meginmarkmið verkefnisins var að þróa niðurbrots- og vinnsluaðferð sem beita mætti á lífmassa alaskalúpínu, til að framleiða umhverfisvænt og öruggt trefjaefni fyrir matvælaumbúðir. Einnig voru gerðar prófanir á trefjaefnisplötum úr lúpínu, á sviði byggingarefna.Logo tækniþróunarsjóðs

Í samstarfi Efnasmiðunnar og Matís voru þróaðar niðurbrotsaðferðir fyrir lífmassa alaskalúpínu, sem gæfu sterkt trefjaefni og hægt væri að nýta í matvælaumbúðir. Í alaskalúpínu eru beiskjuefni sem hugsanlega gætu smitað út frá sér og haft mengandi áhrif á matvæli. Því var þróuð niðurbrotsaðferð á lífmassa lúpínu sem fjarlægir beiskjuefni úr hráefninu. Með því móti er hægt að framleiða sterkar, niðurbrjótanlegar, umhverfisvænar og öruggar matvælaumbúðir (e. food safe). Skalað var upp úr rannsóknarstofu í smáskalavinnslu til að sannreyna vinnsluferlið.

Alskalúpína er sjálfbær planta, sem dafnar vel við íslenskar aðstæður og þarfnast ekki áburðargjafar, né innflutnings á fræi. A.m.k. 30.000 tonn af aðgengilegu lífmassa lúpínu vaxa á suðurlandi á hverju ári. Möguleiki væri að rækta alaskalúpínu til viðbótar fyrir vinnsluna. Hana má nýta við gerð trefjaefnis, en hægt væri að framleiða um 50 milljónir af umbúðaöskjum úr 30.000 tonnum af lúpínu. Umbúðirnar mætti hugsanlega nýta undir íslenskt grænmeti, s.s. tómata, jarðaber og sveppi.

Sérstaða lúpínutrefjaefnisins er sú að það er framleitt án allra íbætiefna s.s. líms með formaldehýði, sem getur gefið því forskot í samkeppni við önnur trefjaefni á markaði fyrir umhverfisvæn byggingarefni í dag. Í Tæknisetri voru gerðar prófanir á trefjaplötum úr lúpínu, á sviði byggingaefna, með hliðsjón af viðurkenndum evrópskum stöðlum og rannsóknum. Niðurstöður mælinga voru bornar saman við þekkt byggingarefni, sem teljast til meðalþéttra trefjaplatna. Með því móti tókst að staðsetja trefjaplötur úr lúpínu miðað við önnur þekkt byggingarefni. Úr 30.000 tonnum af lúpínu má framleiða um 1.300.000 m2 af 10 cm þykkum trefjaplötum.

Niðurstöður verkefnisins sýna að hægt er að vinna t.d. matvælaumbúðir eða byggingaefni úr sjálfbæru vannýttu hráefni alaskalúpínu. Óhætt er að segja að þróun niðurbrotsaðferða hafi gengið vel og staðfesta efnarannsóknir það.

HEITI VERKEFNIS: Lúpína í nýju ljósi – trefjaefni framtíðar

Verkefnisstjóri: Elín S. Harðardóttir

Styrkþegi: Efnasmiðjan ehf.

Tegund styrks: Sproti

Fjöldi styrkára: 2

Fjárhæð styrks: 19.948.000 ISL kr. alls

VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI









Þetta vefsvæði byggir á Eplica