Framlegðarhámörkun - verkefni lokið í Tækniþróunarsjóði
Heiti verkefnis: Framlegðarhámörkun
Verkefnisstjóri: Sveinn Margeirsson, Matís ohf., sveinn.margeirsson()matis.is
Þátttakendur: Maritech, Trackwell, AGR, Samherji hf., Vísir hf., FISK Seafood hf. og Guðmundur Runólfsson hf.
Verktími 2 ár
Styrkfjárhæð alls: 14,4 millj.kr.
Tilvísunarnúmer Tækniþróunarsjóðs: 061215
VERKEFNIÐ VAR STUTT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Verkefninu Framlegðarhámörkun er lokið. Þróuð hefur verið frumgerð að hugbúnaði sem ætlað er að auðvelda stýringu veiða og vinnslu botnsjávarfisks, með áherslu á þorsk. Er hugbúnaðurinn nefndur FisHmark. Niðurstöður hafa verið kynntar hagsmunaaðilum og hefur þeim verið sýndur talsverður áhugi. Í framhaldi af verkefninu er ráðgert að þróa fullgerða útgáfu hugbúnaðar, sem ætluð verður til sölu á innanlands- og utanlandsmarkaði.
Hugbúnaðurinn mun nýtast sjávarútvegsfyrirtækjum við að tengja saman upplýsingar um veiðar og vinnslu bolfisks og nýta þær til að ná fram hagkvæmari stýringu á sókn og vinnslu bolfisks. Hugbúnaðurinn er sniðinn að þörfum íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja en uppbygging hans er með þeim hætti að auðvelt er að þróa hann til útflutnings.
Verkefnisstjóri var Sveinn Margeirsson hjá Matís ohf. Auk Matís tóku hugbúnaðarfyrirtækin Maritech, Trackwell og AGR þátt í verkefninu sem og sjávarútvegsfyrirtækin Samherji hf., Vísir hf., FISK Seafood hf. og Guðmundur Runólfsson hf.
Listi yfir afrakstur verkefnisins, sem og skýrslur, greinar og handrit.
Frumgerð hugbúnaðar, skýrslur um uppbyggingu og eiginleika hugbúnaðarins.
