OHM - Frekari þróun og hönnun nýs hljóðfæris

Fréttatilkynning verkefnisstjóra

4.12.2015

Segulharpan er einstök að því leyti að hún myndar tón sinn með sérhönnuðum rafbúnaði sem myndar kraftmikið segulsvið umhverfis hvern og einn streng, og fær þá þannig til að sveiflast. 


Segulharpa er nafn á nýrri tegund hljóðfæris, sem vinnur á mærum hljóðfæra- og raftónlistar. Hljóðfærið er 25 strengja harpa sem hefur verið í þróun undanfarin fjögur ár, þar af hafa síðastliðin tvö ár þróunarferlisins verið gerð möguleg fyrir tilstilli frumherjastyrks frá Tækniþróunarsjóði, og þar á undan fékk verkefnið 3 mánaða starfsstyrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna, en vert er að nefna að verkefnisstjórinn Úlfur Hansson hlaut Nýsköpunarverðlaun Forseta Íslands fyrir uppgötvanir sínar. Segulharpan er einstök að því leyti að hún myndar tón sinn með sérhönnuðum rafbúnaði sem myndar kraftmikið segulsvið umhverfis hvern og einn streng, og fær þá þannig til að sveiflast. Hljóðfæri af þessu tagi, sem býr í senn yfir akústískum, rafmögnuðum og stafrænum eigindum hefur enn ekki verið markaðssett, en áhugi fyrir því er nú þegar mikill.

Heiti verkefnis: OHM - Frekari þróun og hönnun nýs hljóðfæris
Verkefnisstjóri: Úlfur Hansson, Ýlfri ehf.
Tegund styrks: Frumherjastyrkur
Styrkár: 2013-2014
Fjárhæð styrks: 12,344 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: 131660-061

VERKEFNIÐ VAR STYRKST AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.

Hljóðfærið er mikilvæg viðbót við þá gríðarlegu flóru nýrra hljóðfæra sem hafa orðið til á undanförnum áratug í kjölfar tæknibyltinga á sviði smátölva og snjallsíma, án þess þó að vera í beinni samkeppni við önnur álíka spennandi og farsæl verkefni. Frumherjastyrktartímabil verkefnisins hefur nú liðið undir lok og hafa orðið til 4 eintök af Segulhörpunni með háþróaðri frumgerð rafkerfis sem knýr strengina áfram við snertingu fingurgóma notandans. Segulharpan hefur þegar gefið góða raun í tónlistarheiminum. Úlfur Hansson, verkefnisstjóri verkefnisins sigraði t.d. á Alþjóðlega Tónskáldaþinginu 2013 (e. the International Rostrum of Composers) fyrir verk sitt “So very strange” sem var flutt og samið á Segulhörpu.

Nýlega hlaut verkefnisteymið verkefnastyrk frá Tækniþróunarsjóði sem ætlaður er til að fjármagna áframhaldandi þróun og prófanir á Segulhörpunni, rafkerfis hennar og tölvustýringu. Með nýfengnum verkefnastyrk frá Tækniþróunarsjóði er markmiðið að Segulharpan verði tilbúin til fjöldaframleiðslu við lok 2017 svo almennir notendur geti eignast hljóðfærið - og þróað verði hugbúnaðarviðmót fyrir fartölvur og snjallsíma - ásamt einfaldaðri útgáfu af rafkerfi hörpunnar sem unnt er að koma á markað fyrir þá sem hafa áhuga. Einnig verður hluti þeirrar þekkingar sem hefur skapast gerð aðgengileg þeim sem hafa áhuga á að nýta sér tæknina með algengari strengjahljóðfærum líkt og píanóum og rafmagnsgíturum, t.d innan háskólasamfélagsins þar sem þekkingin sem skapast hefur fyrir tilstilli verkefnisins getur nýst öðrum við frekari nýsköpun.

Tenglar: verkefnisstjóri: Úlfur Hansson - Sími 6167888 - Netfang ulfurh@gmail.com –

Heimasíða Úlfs Hanssonar hér .









Þetta vefsvæði byggir á Eplica