Gagnvirk nemendagátt í InfoMentor
Mentor stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki í Norður-Evrópu á sviði upplýsingakerfa fyrir skóla árið 2012.
Mentor hefur í 16 ár unnið með skólum landsins í þróun upplýsingakerfisins Mentor.is. Notendur kerfisins skipta þúsundum. Kerfið er markaðssett í Svíþjóð og Danmörku undir heitinu InfoMentor.
Sjálfsmat og markaðssetning nemenda í InfoMentor er framhald af verkefninu "Einstaklingsmiðaðar námsáætlanir" sem stutt var af Tækniþróunarsjóði.
Tilgangur verkefnisins er að hanna, smíða og innleiða aðgang nemenda að InfoMentor sem virkjar nemendur og foreldra enn frekar við gerð einstaklingsmiðaðra námsáætla í grunnskólum. Nemendur geta á einfaldan hátt metið eigin námsárangur og sett sér markmið sem auðveldar kennurum að framfylgja stefnu um einstaklingsmiðað nám.
Kerfiseiningin mun styrkja enn frekar samkeppnisforsskot InfoMentors þar sem ný lög í Danmörku og Svíþjóð skylda kennara til að útbúa námsáætlanir fyrir hvern nemanda (www.uvm.dk) með þátttöku foreldra og nemenda í svokölluðu þróunarsamtali (s. Utvecklingssamtal).
Helstu vinnslur í kerfiseiningunni eru:
2. Sérstakur aðgangur nemenda að InfoMentor.
3. Sjálfsmat og markmiðssetning (svæði nemanda). Nemandi vinnur í samvinnu við foreldra að mati og áætlun sem er undirbúningur fyrir þróunarsamtal (s. Utveklingssamtal).
4. Sjálfsmat og markmiðssetning (svæði kennara). Mat nemanda verður sjáanleg á svæði kennara í InfoMentor. Mat kennara og nemenda leggur grunn að þróunarsamtali.
5. IUP mappa. Í kerfinu stofnast mappa sem heldur utan um Utveklingssamtal og námsáætlnir nemenda.
Verkefnisstjóri: Vilborg Einarsdóttir, Mentor ehf. Netf.: vilborg@mentor.is .
Umsjónarmaður Rannís: Snæbjörn Kristjánsson. Netf.: skr@rannis.is .