Gavia Offshore
Heiti verkefnis: Gavia Offshore
Verkefnisstjóri: Tómas Þorsteinsson, Hafmynd ehf., tomas()gavia.is
Styrktegund: Verkefnisstyrkur
Verktími: 1 ár, hefst 2009
Styrkur: 6,3 millj. kr.
Umsjónarmaður Rannís: Lýður Skúli Erlendsson
Tilvísunarnúmer Tækniþróunarsjóðs: RAN090303-0432
Hafmynd hefur þróað og framleiðir Gavíu, sem er lítið ómannað djúpfar. Gavía er sérstök fyrir þær sakir að það má búa hana tækjum til þess að sinna nýjum verkefnum og hún getur kafað dýpra en önnur sambærileg lítil djúpför. Á undanförnum misserum hefur Hafmynd ehf séð aukin tækifæri í sókn inn á 'offshore' markað sem lýtur að mestu að þjónustu við olíufyrirtæki.
Hafmynd hefur tekið þá stefnu að staðfæra Gavíu sérstaklega að þessum markaði. Gavía hefur þegar vakið áhuga olíufyrirtækja og þeirra fyrirtækja sem þjónusta þau. Til að ná megi árangri á þeim markaði þarf að uppfæra staðsetningarnákvæmni djúpfarsins. Markmið þessa verkefnis er að uppfæra GPS-búnað Gavíu í svonefnt DGPS sem gefur mun betri nákvæmni og bæta staðsetningarvitund Gavíu neðansjávar með því að innlima USBL-mótald í Gavíu sem getur tekið á móti staðsetningu frá yfirborði. Djúpfarið verður eftir breytingar eitt um að uppfylla kröfur þessa markaðar og markaðssett sérstaklega undir heitinu Gavia Offshore.