GolfPro Assistant – verkefni lokið

Fréttatilkynning verkefnisstjóra

6.7.2017

Tilgangur verkefnisins var að þróa hugbúnaðarlausn sem bindur saman alla þætti golfkennslu, séð frá sjónarhorni golfkennara sem og nemenda.

Í upphafi árs 2014 fékk 1337 ehf. styrk frá Tækniþróunarsjóði til þróunar GolfPro Assistant, heildarlausnar fyrir golfkennara og nemendur þeirra. Tilgangur verkefnisins var að þróa hugbúnaðarlausn sem bindur saman alla þætti golfkennslu, séð frá sjónarhorni golfkennara sem og nemenda.

GolfPro Asisstant (GPA) er fyrsta hugbúnaðarlausnin sem bindur saman alla þætti golfkennslunnar. Í fyrsta lagi er GPA skipulagningar- og umsýslutól fyrir golfkennara, hannað til að einfalda og betrumbæta þeirra rekstur. Jafnframt einfaldar GPA öll samskipti og eftirfylgni kennara við nemendur með því að gera kennurum kleift að senda nemendum æfingar, verkefni og próf á milli kennslutíma. GPA er einnig vettvangur fyrir nemendur til að finna og bóka tíma hjá kennara.

Jafnframt býður GPA upp á aukna tekjumöguleika fyrir golfkennara sem geta nýtt sér fjarkennsluhluta hugbúnaðarins og þannig boðið nemendum sínum nýja og aukna þjónustu.

Heiti verkefnis: GolfPro Assistant - heildarlausn fyrir golfkennara og nemendur þeirra
Verkefnisstjóri: Daði Janusson, 1337 ehf.
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2013-2015
Fjárhæð styrks: 36 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: 132090061

VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.

Í upphafi árs 2014 fékk 1337 ehf. styrk frá Tækniþróunarsjóði til þróunar GolfPro Assistant, heildarlausnar fyrir golfkennara og nemendur þeirra. Tilgangur verkefnisins var að þróa hugbúnaðarlausn sem bindur saman alla þætti golfkennslu, séð frá sjónarhorni golfkennara sem og nemenda.

Afrakstur verkefnisins er sá að með stuðningi Tækniþróunarsjóðs hefur tekist að þróa og gefa út bæði vefútgáfu af hugbúnaðarlausninni sem og snjallforrit (e. app) fyrir bæði Android og iOS snjalltæki.

Næstu skref félagsins eru að halda áfram þróun á hugbúnaðinum í takt við þarfir notenda og tryggja fjárhagslegan grundvöll þess.

Tækniþróunarsjóði er þakkað árangursríkt samstarf á verktímabilinu.

Afrakstur:

  • Snjallforrit (e. app) fyrir bæði iOS og Android snjalltæki
  • Vefhugbúnaður á innlendum og erlendum markaði
  • Fjarkennsluhugbúnaður fyrir golfkennara








Þetta vefsvæði byggir á Eplica