Stýranlegir toghlerar

Verkefni lokið

25.6.2014

Eftir tveggja ára stuðning frá Tækniþróunarsjóði og AVS við verkefnið  sem tengist stýranlegum toghlerum fengust ótvíræðar niðurstöður um að hægt er að stjórna legu og stöðu veiðarfærisins með stýranlegum toghlerum sem gefur gífurlega hagræðingu í orkunýtingu og aukna veiðihæfi með réttri staðsetningu veiðarfærisins í sjónum.

Poseidon stýranlegi toghlerinn er byggður upp með sex vængjum þrem fyrir ofan miðju og þrem fyrir neðan miðju, sem hægt er að stjórna og færa vængina nær hver öðrum eða fjær hver öðrum. Þannig er hægt að stjórna sjóflæðinu í gegnum hlerana og fjarlægðinni á milli þeirra. Hverjum væng er hægt að stjórna sjálfsætt sem gerir kleift að stjórna einnig hæð veiðarfærisins í sjónum.

Heiti verkefnis: Stýranlegir toghlerar
Verkefnisstjóri: Atli Már Jósafatsson, Pólar togbúnaður ehf.
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Fjárhæð styrks: 20 millj. kr. alls
Styrkár: 2012-2013
Tilvísunarnúmer Rannís: 120844-061
 


VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI. 

Farið var tvisvar með par af 4,1 fm Poseidon stýranlegum hlerum með r/s Árna Friðrikssyni sem staðfesti hugmyndir okkar um að það er ekki bara hægt að stjórna legu og stöðu veiðarfærisins með stýranlegum toghlerum, heldur hefur það í för með sér gífurlega hagræðingu hvað orkunýtingu varðar og aukna veiðihæfi með réttri staðsetningu veiðarfærisins í sjónum

Við stjórnun á vængjum Poseidon hleranna í prufutúrunum með r/s Árna Friðrikssyni, forrituðum við stjórnbúnaðinn til að gera eina fyrirfram ákveðna breytinu á 10 mínútna fresti og fylgdumst við með stjórntækjunum í brú skipsins sem sýndu breytingar á fjarlægð og stöðu hleranna auk mæla sem sýndi orkunotkun og álag á skrúfumótor.

Við breytingar á stöðu vængjanna, jókst bil á milli hleranna úr 54 metrum í 72 metra og við að stjórna neðri vængjum í andstæða átt miðað við efri vængi hleranna, þá færðust hlerarnir úr 14-16 metra fjarlægð frá yfirborði í 6-8 metra.

Með stýranlegum toghlerum er hægt að stjórna stöðu veiðarfærisins í hentugustu stöðu þar sem best er að veiða, t.d. með legu þess í ákveðinni fjarlægð frá botni til að hlífa toghlerunum og öllu veiðarfærinu við ágangi við botninn bæði hvað varðar umhverfissjónarmið út frá snertingu við botn og minna viðhaldi veiðarfærisins og olíunotkun.

Hinn umhverfisvæni ávinningurinn við notkun stýranlegra toghlera er olíunotkun en við prófanir á r/s Árna Friðrikssyni á 5,0 mílna togferð og með toghlerana í mestu opnun fór álagt á skrúfumótor úr 510 kW niður í 455 kW eða hlerana í minnstu opnun og olíunotkun fór úr 165 l/klst í 154 l/klst.

Staðreynd um meira en 30% breytingu á hlerabili og 7% lækkun á olíunotkun er gott veganesti fyrir framhaldið.

Einnig höfum við kynnt árangur af Poseidon stýranlegu hlerunum til aðila tengdra olíurannsóknum en við bergmálsmælingar sem framkvæmdar eru með stórum skipum sem kallast ”Seismic vessels” eru dregnir stórir hlerar til að halda miklu magni af flóknum rafeindabúnaði sem mælir möguleg setlög olíu i jarðskorpunni.

Listi yfir afrakstur verkefnisins, sem og skýrslur, greinar og handrit. 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica