Dohop – flugbókunarvél - verkefni lokið í Tækniþróunarsjóði

24.4.2006

Markmið verkefnisins var að þróa miðlæga flugbókunarvél sem gerir fólki kleift að finna og bóka flug hjá evrópskum lággjaldaflugfélögum á einum stað.
Verkefnisstjóri var Atli Þorbjörnsson.

Heiti verkefnis: Dohop - flugbókunarvél
Verkefnisstjóri: Atli Þorbjörnsson, netf.: atli@dohop.com
Stuðningsþegi: Dohop ehf.

VERKEFNIÐ VAR STUTT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.

Markmið verkefnisins var: "Að þróa miðlæga flugbókunarvél sem gerir fólki kleift að finna og bóka flug  hjá evrópskum lággjaldaflugfélögum á einum stað". Tæknilegt nýnæmi bókunarvélarinnar felst í því að samræma bókunarkerfi lággjaldafélaganna en bókunarvélar þeirra eru ólíkar og bjóða ekki upp á beintengingar við utanaðkomandi bókunarkerfi.  Dohop mun því hanna og "þjálfa" "róbóta" sem líkja í einu og öllu eftir venjulegum notendum að vefbókunarvélum flugfélaganna."

Verkefnið gekk vel og hefur þegar skilað fyrirtækinu mikilvægum afrakstri. Lokið var við að fullþróa róbótakerfi sem gerir dohop kleift að tengjast vefviðmóti bókunarkerfis flugfélags með traustari hætti og á mun skemmri tíma en áður. Þetta róbótakerfi hefur gert dohop kleift að tengjast við meira en 100 bókunarkerfi en upprunaleg áætlun gerði ráð fyrir aðeins 30 kerfum.

Í lokaáfanga verkefnisins tókst að ljúka við þann þátt kerfisins sem skilar notendum á þrep tvö af fimm í bókunarkerfum. Með þessu má draga þó nokkuð úr tvíverknaði fyrir notendur en þetta er þó ekki eins djúp tenging og stefnt var að í upphafi. Stefnt var á að komast á þriðja þrep bókunar en þegar á verkefnið leið varð ljóst að það yrði ekki mögulegt án náinnar samvinnu við framleiðendur bókunarkerfanna. Framleiðendur voru hins vegar ófúsir til samstarfs á þessum tíma og því varð ekki komist eins langt og stefnt var að í þessum efnum.

Lokaniðurstaðan er þó sú að verkefnið hefur skilað fullbúnu verðuppflettingakerfi og tengingum við meira en hundrað bókunarkerfi. Kerfið hefur þegar verið tekið í notkun á http://www.dohop.com og virkar eins og stefnt var að.

Tækniþróunarsjóður veitti verkefninu stuðning sem nam 50% af kostnaðaráætlun eða 3 m.kr.  Það er ljóst að verkefnið hefði ekki gengið jafn hratt og vel fyrir sig og raun bar vitni ef þessa stuðnings hefði ekki notið við.

Flugleit dohop.com er nú ein sú ýtarlegasta og hraðvirkasta sem völ er á og hefur leitarvélin vakið athygli bæði innlendra og erlendra fjölmiðla. Notkun www.dohop.com fer vaxandi meðal ferðafólks um heim allan og flugfélög sýna áhuga á samstarfi.

dohop ehf. vill nota þetta tækifæri til að þakka Tækniþróunarsjóði fyrir veittan stuðning.

Afrakstur verkefnisins má sjá á vefsíðu félagsins  http://www.dohop.com  

Verðuppflettingar og skil á notanda á þrep 2-3 í bókun eru meginafrakstur verkefnisins. Búið er að verðtengja meira en 100 bókunarkerfi og hægt að skila notendum í 20 bókunarvélar, til dæmis Iceland Express.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica