Amivox skilaboðaþjónn

12.12.2007

í verkefninu verður unnið að hönnun og þróun á nýrri kynslóð af efnisgátt fyrir farsímanotendur. Efnisgáttin verður sérstaklega hönnuð með tilliti til framþróunar símkerfa (Edge/3G og IMS (IP Multimedia Subsystem)) og aukinnar tæknilegrar getu handtækja.
Verkefnisstjóri er Birkir Marteinsson, Amivox ehf.

Hönnun og þróun á nýrri kynslóð af efnisgátt fyrir farsímanotendur. Efnisgáttin verður sérstaklega hönnuð með tilliti til framþróunar símkerfa (Edge/3G og IMS (IP Multimedia Subsystem)) og aukinnar tæknilegrar getu handtækja.

Kerfið mun valda byltingu fyrir efnisveitur í því að koma efni sínu á framfæri. Kerfið opnar nýjar dreifileiðir fyrir efni, opnar fyrir sendingar á efni sem ekki hefur verið hægt að senda í farsíma áður, lækkar tækniþröskuld fyrir allar efnisveitur verulega og getur sparað efnisveitum verulegar upphæðir. Kerfið mun auka verulega möguleika fyrir íslenskar efnisveitur á að koma sínu efni á framfæri erlendis, og fyrir íslensk farsímafyrirtæki að keppa á alþjóðamarkaði um ódýra skilboðalúkningu.

Kerfið notast eingöngu við stöðluð samskipti og viðmót. Kerfið tengist við símkerfiseiningar eins og SMSC og MMSC ásamt því að tengjast við öll helstu IM kerfi. Kerfið mun sjá um endurformun skeyta til stuðnings við þau form sem þarf til að styðja við birtingu í mismunandi farsímagerðum.

Verktími er áætlaður 3 ár, upphafsár 2007.

Heiti verkefnis: Amivox skilaboðaþjónn
Verkefnisstjóri er Birkir Marteinsson, Amivox ehf.,
birkir@amivox.com

Umsjónarmaður Rannís er Oddur Már Gunnarsson, omg@rannis.is
Tilvísunarnúmer Tækniþróunarsjóðs 071334007









Þetta vefsvæði byggir á Eplica