Fiskprótein í frárennsli - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði

5.6.2008


Heiti verkefnis: Fiskprótein í frárennsli
Verkefnisstjóri: Arnljótur Bjarki Bergsson, Matís ohf.
matis@matis.is   
Þátttakendur: Brim hf., FISK Seafood á Sauðárkróki og Matís ohf. ásamt Iceprotein ehf.
Verktími: 1 ár
Styrkfjárhæð: 5,4 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Tækniþróunarsjóðs: 051366

VERKEFNIÐ VAR STUTT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.

Eitt af meginmarkmiðum í verkefninu "Fiskprótein í frárennsli" var að vinna að aukinni nýtingu og auknu verðmæti afla sem unninn er í landvinnslu með því að finna leiðir til einangrunar fiskvöðva úr vatni sem kemur frá vinnslulínum og leggja mat á notkunarmöguleika þeirra til manneldis. Afskurður, hryggir og hausar eru aukahráefni sem til fellur við fiskvinnslu sem er nýtt áfram til manneldis að mismiklu leyti.  Hins vegar er sá hluti próteina sem tapast í frárennslisvatni frá vinnsluvélum, þ.e. flökunar- og roðflettivélum varla nýttur sem nokkru nemur.  Ef magn bolfiskafurða allra vinnslustöðva er um 60 þús. tonn á ári, má gróflega áætla að um 1.200 tonn af þurrefni tapist árlega.

Afrakstur verkefnisins fólst í frumgerð að ferli til söfnunar á massanum við fiskvinnslu og mati á eiginleikum og magni hans.  Með einfaldari stærðarflokkun (síun) má skilja að grófari fiskhluta sem nýst geta t.a.m. í unnar afurðir eins og marning. Fínni massa væri hægt að nýta beint sem tæknileg íblöndunarefni, beint úr einangrunarferlinu eða eftir frekari vinnslu sem gæti tryggt frekar heilnæmi þeirra og/eða bætt tæknilega eiginleika, t.d. til að auka nýtingu í fiskflökum með innsprautun eða annarri íblöndun í fiskafurðir. Með því ferli sem þróað var í verkefninu tókst að ná um 25% af öllu þurrefni úr frárennsli frá flökunarvél. Með notkun á hristisigtum við síun tókst að ná fínum hvítum massa úr frárennslinu með kornastærð 250-710 µm, sem hentar vel í framleiðslu hágæðapróteina. Massi sem hafði kornastærð stærri en 850 µm, var mjög grófur og blóðlitaður og hentar því frekar í marning ef hægt er að draga úr neikvæðum áhrifum blóðmengunar. Við söfnun á massa undir 250 µm þarf annan búnað, svo sem himnusíun, þar sem þurrefnin fara í gegnum 250 µm sigti.

Annar afrakstur verkefnisins eru umhverfisvænni framleiðsluhættir þar sem minna af lífrænu efni er skilað út í umhverfið sem er í samræmi við auknar kröfur um hreinni framleiðslutækni. Prótein úr frárennslisvatni er hægt að nýta á öruggan hátt til manneldis með litlum tilkostnaði sem mun skapa aukinn virðisauka við fiskvinnslu, ásamt því að hreinsa frárennslisvatn í leiðinni sem hægt er að endurnýta í vinnsluferlinu. 

Við mat á kostnaði við að koma upp búnaði til söfnunar, þarf að hafa í huga að þessi búnaður getur komið í stað búnaðar sem þarf til að uppfylla kröfur um magn lífrænna efna í frárennslisvatni.  Grunnhugmyndin er því sú að færa hreinsun vatnsins framar í ferlið og úfæra hana á þann hátt að nýta megi safnaðan massa til manneldis. 

Þátttakendur í verkefninu voru Brim hf., FISK Seafood á Sauðárkróki og Matís ohf. ásamt Iceprotein ehf.
Styrktaraðilar voru Tækniþróunarsjóður og AVS-sjóðurinn.

Listi yfir afrakstur verkefnisins, sem og skýrslur, greinar og handrit.

Lokaskýrsla Matís.
Verkefnið hefur verið kynnt með skrifum í Morgunblaðið og með fréttatilkynningu á heimasíðu. 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica