Náttúruleg ensím og andoxunarefni úr aukaafurðum
Markmið þessa verkefnis er að þróa og rannsaka mismunandi nýjar próteasablöndur úr þorskslógi í þeim tilgangi að nota þær til framleiðslu á hydrolýsötum (niðurbrotnum próteinum) og peptíðum úr fiski með mjög mikla andoxunarvirkni.
Forrannsóknir hafa sýnt fram á að ensímblöndur úr þorskslógi geta framleitt peptíð með mjög mikla andoxunarvirkni, mun meiri en peptíð fengin úr niðurbroti annarra algengra ensímblandna sem hafa verið kannaðar. Með því að stilla af styrk og virkni lykilensíma í blöndunni sem unnin er úr slógi er markmiðið að hægt sé að stýra framleiðslunni á hydrolýsötum og peptíðum til að framleiða náttúrulegar afurðir með mjög mikla sértæka andoxunarvirkni. Þessar afurðir yrðu unnar úr protein isolati einangruðu úr vannýttu hráefni (hryggjum).
Framtíðarsýnin er að í lok þessa verkefnis muni hefjast framleiðsla á stórum skala og sala á mismunandi einstökum iðnaðarensímblöndum unnum úr þorskslógi sem yrðu sérstaklega markaðsett til framleiðslu á lífvirkum peptíðum. Einnig er séð fram á að fyrirtæki í próteinvinnslu hér á landi komi til með að nýta sér þessi einstöku ensím til framleiðslu á náttúrulegum andoxunarefnum bæði til nota í matvælum og einnig markaðsetja þau sem heilsusamleg fæðubótarefni með vísindalega staðfesta virkni.
Heiti verkefnis: Náttúruleg ensím og andoxunarefni úr aukaafurðum
Verkefnisstóri: Hörður G. Kristinsson, Matís ohf.-Prokaria, hordur()matis.is
Þátttakendur: Matís ohf., Norður ehf., Iceprotein ehf., MPF Ísland ehf. og University of Florida
Verktími: 3 ár
Styrkur: 9 m.kr. 1. árið
Umsjónarmaður Rannís: Lýður Skúli Erlendsson, lydur@rannis.is
Tilvísunarnúmer Tækniþróunarsjóðs: 081231